Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.12.1961, Blaðsíða 27
25
Tafla 10. Áhrif köfnunarefnisáburðar á fosfórmagn grass. Taflan tekur tl
sömu ára og tafla 4.
The effect of nitrogen on phos'þhorus content of grass. The Table refers
to same experimental seasons as Table 4.
% fosfór (P) í þurrefni grass
Per cent phosphorus in dry matter of grass
Áburður Sláttur Akureyri Skriðuklaustur
fertilizer treatment cuttings 3ja ára meðaltöl 4 ára meðaltöl
three years' four years'
averages averages
a: 0 - 26,2 - 751) 1. sl. 0,30 0,31
b: 40-26,2-75 1. - 0,30 0,31
c: 80 - 26,2 - 75 1. - 0,30 0,31
d: 120-26,2-75 1. - 0,31 0,32
a: 2. sl. 0,32 0,32
b: 2. - 0,32 0,32
c: 2. - 0,31 0,31
d: 2. - 0,29 0,31
Sjá athugasemdir um táknun áburðarmagns neðanmáls við töflu 4.
J) See footnote of Table 4.
Annars er samanburður á niðurstöðum tilraunastöðvanna fjögra, er um
getur í töflu 8, naumast gerlegur vegna þess, að hin miklu áhrif veðurfars
á upptekið fosfórmagn grasa verða ekki metin tölulega né saman borin. Til-
raunirnar á stöðvunum fjórum spenna ekki yfir sömu ár og veðrátta og
sprettutíð á þessum stöðum er að sjálfsögðu ærið ólík, einnig fyrir hvert ein-
stakt ár. Áhrif veðurfars á grassprettu, og þar með á fosfórupptöku, er að
vísu mikilvægt atriði, en ekki eru tök á að gera þessum þætti viðhlítandi
skil með aðstoð þeirra takmörkuðu gagna, er grein þessi fjallar um og styðst
við. Hér á landi hafa raunar ekki verið gerðar tilraunir til að meta þessi
áhrif tölulega. Og með því að áhrif veðurfars á tilraunaniðurstöður þessarar
greinar verða ekki mæld í tölum, verða áhrif jarðvegstegunda eða brevtilegir
jarðvegseiginleikar heldur ekki tölulega metin. Eigi að síður þykir rétt að
lýsa jarðvegsástandi tilraunaspildanna lítillega með töflu 13.
Af framangreindu leiðir, að með grein þessari eru teknar saman niður-
stöður rannsókna, eða birtar staðreyndir, án þess að leitazt sé við að rekja
orsakasamhengi þeirra við aðra þætti en magn köfnunarefnis- og fosfórá-
burðar. Um leið má vekja á því athygli, að staðreyndir eða áreiðanlegar til-
raunaniðurstöður skipta að sjálfsögðu meginmáli varðandi hina fjölmörgu
þætti jarðræktar. En vitanlega ber einnig að keppa að því að skýra niður-
stöðurnar og afla skilnings á áhrifum hinna ýmsu þátta, er áhrif hafa á
þær. Er þá eðlilegt að beina athyglinni fyrst og fremst að þeim þáttum, sem
maðurinn ræður yfir að einhverju eða verulegu leyti.
Snúum okkur nti aftur að töflu 8 og lítum á fosfórmagn grassins. f þessu