Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.12.1961, Blaðsíða 38
NÍTRATMAGN í GRASI OG FÓÐURKÁLI
INNGANGUR
Þess eru nokkur dæmi, að hátt nítratmagn í fóðurjurtum hafi valdið dauða
búfjár, einkum nautgripa. Virðist þessa helzt hafa orðið vart í Norður-Am-
eríku, og bandarískir og kanadískir vísindamenn liafa unnið mest rannsókn-
arstörf á þessu sviði. Telja þeir, að fóðurjurtir, er innihalda meira en 0,2%
af nítratköfnunarefni (NO3—N), geti verið hættulegar lífi og heilsu búfjár-
ins (sjá t. d. Bradley, et. al., 1940). Sumir telja, að minna nítratmagn, eða
frá 0,1 til 0,15% NO3—N, geti haft skaðleg áhrif, þótt ekki sé það lífshættu-
legt (Muhrer et. al., 1956). Stewart og samverkamenn (1958) drápu tilrauna-
kú með því að gefa henni tæp 8 g af NO3—N fyrir hver 100 kg af lifandi vigt.
Sund (1959) komst að eftirfarandi niðurstöðum við rannsóknir í Wisconsin:
1) Kýr létu kálfum vegna mikils nítratmagns í illgresisjurtum, er uxu i
beitilandinu.
2) Þrjár kvígur drápust, er þeim voru gefin 20 g af NO3—N í tvo daga í röð.
3) Þrjár kvígur létu kálfum á 3—5 dögum við daglega inngjöf af 14 g
af NOa-N.
4) Þrjár kvígur, sem í samfellt sex vikur fengu daglega 8 g af NO3—N,
sakaði ekki.
Hér skal drepið á danskar og sænskar rannsóknir á nítratmagni jurta af
krossblómaætt. Chresten Sörensen (1960) rannsakaði nítratmagn í fóðurróf-
um í Danmörku, bæði í káli og rót, við breytilegt áburðarmagn og komst
m. a. að þessum niðurstöðum:
Kg N/ha sem NaNOs .................. 0 62,4 124,8 187,2 249,6 312,0
% NOa-N í þurrefni káls, 1950 0,11 0,094 0,18 0,32 0,42
% NOs-N í þurrefni káls, 1954 0,131 0,166 0,434 0,409 0,520 0,671
Nítratmagn rótanna í þessum tilraunum var miklu lægra en í kálinu og
mest 0,22%. Þessar tölur sýna, hve nítratmagn í káli fóðurrófna er háð á-
burðarmagni.
Sture Eriksson og Folke Vestervall (1960) efnagreindu raps á mismunandi
tímum sumars við mismunandi áburðarmagn og komust m. a. að þessum
niðurstöðum:
Kg N á ha sem kalksaltpétur, (CaN03)2: ......... 0 62 124 186
% NO3—N af þurrefni; meðaltal 6 sláttutíma .... 0,14 0,31 0,41 0,56