Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1962, Blaðsíða 5
FORMÁLI.
Tilraunir þær, sem lýst er í þessari skýrslu, voru gerðar a£ Tilraunaráði
búfjárræktar og Verkfæranefnd ríkisins og kostaðar af því fé, sem veitt er
í fjárlögum til heyverkunartilrauna og landbúnaðarráðuneytið fól nefndum
aðilum að framkvæma. Nokkuð af starfskröftum við framkvæmd þessara
tilrauna var þó lagt fram og kostað af Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskól-
ans og Verkfæranefnd ríkisins.
Tilraunirnar voru skipulagðar af Tilraunaráði búfjárræktar og Verkfæra-
nefnd í sameiningu. Pétur Gunnarsson, tilraunastjóri, Einar Þorsteinsson,
héraðsráðunautur, og Ólafur Guðmundsson, framkvæmdastjóri, önnuðust
iramkvæmd tilraunanna, og sá síðastnefndi gerði vinnuathuganir jafnframt.
Eru þær birtar í skýrslu Verkfæranefndar nr. 4, 1958.
Efnagreiningar voru gerðar á rannsóknarstofu Iðnaðardeildar Atvinnu-
deildar Háskólans.
Stefán Aðalsteinsson, sérfræðingur í búfjárrækt, sá um útreikning á til-
raununum, og Bjarni Arason, ráðunautur, og Vigdís Hallgrímsdóttir að-
stoðuðu Stefán við útreikninga.
Tilraunaráð búfjárræktar og Verkfæranefnd ríkisins þakka ofangreindum
starfsmönnum svo og bændum þeim, sem tilraunirnar voru gerðar hjá, og
öðrum þeim, sem unnu á einn eða annan hátt að þessu viðfangsefni, fyrir
gott starf.
Reykjavík, í febr. 1961,
Guðmundur Jónsson
(formaður Verkfæranefndar ríkisins).
Halldór Pálsson
(formaður Tilraunaráðs búfjárræktar).