Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1962, Qupperneq 7
RANNSÓKNAREFNI OG AÐFERÐIR.
1. Yotheysgeymslur, verkunaraðferðir, hitamælingar og
ákvörðun á efnatapi.
Sumarið 1956 var rannsökuð verkun á votheyi í 3 turnum, 2 á Blesastöð-
um og 1 í Skeiðháholti á Skeiðum í Árnessýslu.
Sumarið 1957 var rannsökuð verkun á votheyi i þessum sömu turnum og
auk þess í 2 gryfjum í Skeiðháholti, 3 turnum og 2 gryfjum í Laugardælum
í Hraungerðishreppi i Árnessýslu og í tveimur gryfjum á Hvanneyri, Borg-
arfirði. Tafla 1 sýnir tegund geymslnanna, staðsetningu þeirra og stærð
ásamt meðferð grassins.
Allar geymslurnar voru steinsteyptar og með frárennsli.
Tafla 1. Votheysgeymslur, tegund og stærð þeirra og meðferð grassins.
Type and size of silos and treatment oj grass.
Tegund geymslu og baer Ár Hæð m Þvermál m Gras saxað Farg
type of silo and farrn year heigh t m diam. m grass pressure chopped
Ti Turn, Skeiðháholti tower silo 1956 13 4 + —
T2 Turn, Blesastöðum tower silo 1956 13 4 + —
T3 Turn, Blesastöðum tower silo 1956 13 4 + —
T4 Turn, Skeiðháholti tower silo 1957 13 4 + —
Tg Turn, Blesastöðum tower silo 1957 13 4 + —
Tö Turn, Blesastöðum tower silo 1957 13 4 + —
T7 Turn, Laugardælum tower silo 1957 13 4 — -
Tr Turn, Laugardælum tower silo 1957 16 5 + —
Tg Turn, Laugardælum tower silo 1957 16 5 Flatarmál 4- + ■—
Gi Gryfja, Skeiðháholti low silo 1957 4 2.5x2.5 + —
G2 Gryfja, Skeiðháholti low silo 1957 4 2.5x2.5 ■— —
G3 Gryfja, Laugardælum low silo 1957 4.6 3.15x3.00 + —
G4 Gryfja, Laugardælum low silo 1957 4.6 3.15x3.00 — , —
Gg Gryfja, Hvanneyri low silo 1957 6.7 3x3 + 450 kg/m2
Gc Gryfja, Hvanneyri low silo 1957 6.7 3x3 — 450 kg/m2
Eins og tafla 1 ber með sér, var grasið saxað í öllum turnunum nema ein-
um, Tt. í gryfjunum Gj, G3, og Gö var grasið saxað, en ósaxað í G2, Gr og
Go. Farg var hvergi notað nema í gryfjunum á Hvanneyri, Gs og G6, en þar
var það 450 kg á m2.
Hitamælingar voru framkvæmdar með rafmagnshitamælum. I turnana Ti,
'Fl;, T?, og T<) og gryfjurnar Gj og Go voru látnir 6 mælar, 3 í miðju geymsl-
anna, en 3 við vegg. í hinum geymslunum öllum voru 12 hitamælar, 6 í
miðju og 6 við vegg, sjá töflu 2. Mælarnir við vegg geymslanna voru um 2
cm frá vegg og þess gætt, að þeir væru umluktir heyi og ekki í snertingu við
vegginn sjálfan. Neðstu mælarnir voru látnir í geymslurnar, þegar í þær
var komið um tveggja metra þykkt lag af nýhirtu grasi. Var síðan stillt svo