Fréttablaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 38
MAGNUS ehf. flytur inn
ýmsar vörur tengdar augn-
heilsu og hefur nú hafið sölu
á ZORIA snyrtivörunum
sem eru samþykktar af
augnlæknum og henta vel
fyrir fólk með viðkvæm
augu.
Augun geta verið viðkvæm og það
getur reynst erfitt að finna snyrti
vörur sem henta. „ZORIA snyrti
vörur eru tilvaldar fyrir fólk með
viðkvæm augu því þær eru hvorki
ofnæmisvaldandi né ýta þær undir
truflun á starfsemi fitukirtla í
hvörmunum. Það er kjörið fyrir
fólk með þurra og viðkvæma húð
að nota ZORIA snyrtivörur, þar
sem þær innihalda ekki óæskilegar
olíur, ilmefni, litarefni eða para
ben,“ segir Hildur Sigursteinsdóttir
markaðsfulltrúi hjá MAGNUS ehf.
„Vandamál tengd augum geta
meðal annars stafað af þurrum
augum, hvarmabólgu, ofnæmi,
aukaverkun lyfja og ýmsum
umhverfisþáttum. Líklegt er að
um það bil 15.000 Íslendingar
þjáist af þurrum augum, en þá
framleiða augun ekki nægilegt
magn af tárum eða þau eru ekki
nægilega vel samsett og gufa
f ljótt upp. Algengasta einkenni
þurra augna er aðskotahluts
tilfinning og hún er oftast verst
á morgnana,“ upplýsir Hildur
og bætir við að sérstaka athygli
veki að eitt megineinkenni þurra
augna sé aukið táraflæði. „Fólk
lýsir því oft þannig að þegar það
fari út í íslenska rokið fari tárin að
renna niður vangana. Fólk með
ofnæmi og þeir sem nota snerti
linsur eru útsettari fyrir því að
fá einkenni þurra augna. Linsur
soga í sig tár og minnka aðgengi
tára að hornhimnunni. Þurr
augu eru algengari hjá konum og
koma oftar fram hjá barnshafandi
konum eða eftir tíðahvörf. Líklega
eru um 3.000 Íslendingar með
þurr augu í tengslum við svokall
aðan Sjögren’s sjúkdóm og/eða
gigtarsjúkdóma,“ segir Hildur.
Mörg lyf valda þurrum augum
og má þar nefna slímhúðar
þurrkandi lyf (decongestants),
mörg ofnæmislyf, þvagræsilyf,
betablokkar (háþrýstingslyf), ýmis
svefn, þunglyndis og verkjalyf.
Ýmsir umhverfisþættir geta
verið slæmir fyrir augun eins
og óhreinindi og þurrt loft. „Við
blikkum um 40% sjaldnar þegar
við horfum á tölvuskjá heldur en
bók. Þetta veldur aukinni upp
gufun tára. Viftur í tölvum geta
einnig þurrkað upp andrúmsloftið
í kringum tölvuna. Athyglisvert er
að fartölvur þurrka augu meira en
borðtölvur vegna styttri fjarlægðar
tölvu frá augum notandans.
Hvarmabólga er líklega algeng
asti augnsjúkdómurinn á Íslandi.
Erfitt er að meta hlutfall fólks með
hvarmabólgu, þar sem sjúkdómur
inn veldur oft litlum einkennum.
Á hinn bóginn getur hann valdið
einkennum sem eru afar óþægileg
og hafa mikil áhrif á daglegt líf
fólks. Um ástæður sjúkdómsins er
lítið vitað, en talið er að um sé að
ræða ofnæmi fyrir bakteríum sem
við erum öll með á hvörmunum.
Ofnæmið veldur langvinnri bólgu
í hvörmum, með roða og þrota
sem truflar oft starfsemi fitukirtla
í hvörmunum. Ofnæmi almennt
veldur oft einkennum í augum sem
lýsa sér sem bólgur, erting og tára
rennsli. Ofnæmi fyrir snyrtivörum
kemur oft fram sem roði, kláði og
jafnvel hreisturmyndum í húð. Að
öllu þessu sögðu er ljóst að eftir
sóknarvert er að nota snyrtivörur
sem framleiddar eru með það að
leiðarljósi að huga að heilbrigði
augnanna.“ n
ZORIA vörurnar má skoða og
kaupa á magnusheilsuvorur.is
ZORIA snyrtivörur fyrir viðkvæm augu
Augnlæknar
mæla sérstak-
lega með ZORIA
snyrtivörum
fyrir fólk með
viðkvæm augu.
ZORIA augnfarðahreinsir
ZORIA augnfarðahreinsir
er tilvalinn fyrir þá sem eru
með viðkvæm augu eða nota
linsur. Augnfarðahreinsirinn
er mildur, vatnskenndur
hreinsir sem fjarlægir farða án
þess að erta augun eða skilja
eftir leifar. Inniheldur engin
ilm- eða litarefni, né heldur
paraben eða olíur.
ZORIA maskari
ZORIA maskari fyrir viðkvæm
augu er samþykktur af augn-
læknum. Inniheldur engin
ilm- eða litarefni né heldur
paraben eða olíur.
ZORIA Lash augnháraserum
ZORIA Lash augnháraserum er styrktarserum til
að örva vöxt, styrkja og næra augnhárin á nátt-
úrulegan hátt.
ZORIA Brow augabrúnaserum
ZORIA Brow er augabrúnaserum sem byggir á
fjölpeptíð-tækni til að fá fyllri augabrúnir.
Retínól er efni sem hefur
slegið í gegn í snyrtivöru-
heiminum að undanförnu,
en það flýtir fyrir endurnýj-
un á frumum húðarinnar og
gefur henni þannig unglegra
og heilbrigðara útlit.
oddurfreyr@frettabladid.is
Það er ástæða fyrir því að retínól
hefur orðið gríðarlega vinsælt á
undanförnum árum, en það er sér
lega gagnlegt við að hjálpa húðinni
að endurnýja sig, sem er forsenda
fyrir unglegri húð. Tískuvefur
Marie Claire birti nýlega grein þar
sem farið var yfir kosti retínóls.
Retínól getur minnkað hrukkur
og fínar línur í andlitinu og
dregið úr myndun þeirra og gert
litaraft fólks bjartara með því
að fjarlægja gamlar frumur úr
andlitinu og draga nýjar fram.
Það getur líka komið jafnvægi á
feita húð og komið í veg fyrir að
svitaholur stíf list, svo bólur verði
síður vandamál. Það getur einnig
eytt dökkum blettum og örum
eftir bólur. Retínól ýtir líka undir
endurnýjun á kollagenbirgðum
húðarinnar og eykur teygjanleika
hennar, sem gefur frísklegra útlit.
„Þar til snemma á fertugsaldr
inum endurnýja húðfrumur sig á
um 28 daga fresti og búa sífellt til
nýtt lag af húð, en um miðbik fer
tugsaldurs hægist á þessari endur
nýjun og hún fer að gerast á 5070
daga fresti,“ segir húðlæknirinn
Mona Gohara, sem kennir við Yale
háskóla. Það er þessi hæga endur
nýjun sem verður til þess að húðin
í andlitinu þornar, missir lit og fær
hrukkur. En retínól sökkvir sér
djúpt í húðina og flýtir fyrir endur
Retínól
er undraefni
fyrir húðina
Retínól hefur
slegið í gegn, en
það er mikil-
vægt að nota
rétta gerð af
efninu og nota
það á réttan
hátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
nýjuninni, þannig að líkaminn
heldur áfram að framleiða nýja
húð. Þar sem retínól virkar djúpt í
húðinni getur það gjörbreytt litar
haftinu til lengri tíma litið.
En það er einn hængur á. Það
þarf að nota retínól reglulega í að
minnsta kosti þrjá mánuði áður en
árangurinn kemur fram.
Finnið gerð sem hentar ykkur
Retínól er bara eitt af mörgum
retínóíðum sem eru á markaðn
um, en retínóíð eru Avítamín
sýrur. Það eru til nokkrar gerðir
þeirra, sem eru missterkar. Retínól
er næstveikasta gerðin en það
eru líka til mun sterkari retínóíð
og sumar gerðir er bara hægt að
fá með lyfseðli. Þær virka mis
jafnlega en eftir því sem þær eru
sterkari erta þær húðina meira.
Best er að fá húðlækni til að
leiðbeina sér varðandi hvaða gerð
er best að nota, því ólíkar gerðir
henta ólíkri húð. En ef fólk er
óvisst og vill ekki panta tíma hjá
lækni er best að byrja annað hvort
á að nota retínól eða veikustu
útgáfuna af retínóíðum, retínýl
palmítat (retinyl palmitate), og
byrja þar. Gohara læknir mælir
með að halda sig við eina gerð í
heilt ár áður en íhugað er að nota
aðra sterkari.
Sama hvaða gerð er notuð þá
virka þær allar til lengri tíma litið
og rannsóknir sýna að til lang
frama skila veikari útgáfur sama
árangri og sterkari, þannig að það
er óþarfi að hafa áhyggjur af því að
nota of veika gerð.
Mikilvægt að nota efnið rétt
Það er mikilvægt að nota rétta
gerð og að nota ekki of mikið í
einu. Það er gott að byrja á einum
litlum dropa (á stærð við baun) og
nota hann einu sinni á viku fyrstu
vikuna, svo tvisvar á viku í tvær
vikur, þrisvar í viku í þrjár vikur
og svo annað hvert kvöld eftir
það. Retínól á að bera á hreina,
þurra húð á kvöldin.
Ekki nota efni sem vinna á
bólum, sýrur, sýrumaska eða
aðrar vörur sem geta ert húðina
á sama tíma og retínól, því það
getur valdið ertingu og jafnvel
bruna. Retínóíð gera húðina líka
enn þá viðkvæmari fyrir sólar
ljósi, þannig að það er mjög mikil
vægt að nota sólarvörn sem er að
minnsta kosti SPF 30 á húðina á
hverjum morgni, en húðlæknar
mæla almennt með notkun sólar
varnar alla daga ársins.
Það er við því að búast að til að
byrja með fari húðin í gegnum
aðlögunarferli. Húðin getur orðið
þurr, það getur orðið erting og það
geta komið bólur á meðan húðin
er að venjast nýja ástandinu. Til
að vinna gegn því er mikilvægt
að byrja ekki á sterku retínóíði og
fara rólega af stað. En það er líka
mjög mikilvægt að nota þessar
vörur reglulega til að langtíma
áhrifin skili sér.
Það er líka rétt að taka fram að
retínól hentar ekki alveg öllum
gerðum af húð og sumir fá slæm
viðbrögð við notkun þess. Þess
vegna er best að ráðfæra sig við
húðlækni áður en notkun hefst. n
14 kynningarblað 11. nóvember 2021 FIMMTUDAGURSNYRTIVÖRUR