Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 16

Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 16
n Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun Um 95 prósent þeirra sem liggja inni á sjúkra­ húsum landsins, þjak­ aðir af ein­ kennum kórónu­ veirunnar eru óbólu­ sett. Samkvæmt nýrri rannsókn Háskóla East Anglia mun magn kolefnis­ útblásturs í heim­ inum senn vera orðið það sama og það var fyrir Covid­far­ aldurinn. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Hvað er sál? Lesendur sem opnuðu Frétta- blaðið áður en þeir komust til meðvitundar við fyrsta kaffibolla dagsins kunna að telja sig gangandi sönnun á tvíhyggju Descartes um aðskilnað anda og efnis; líkaminn er kominn á stjá á meðan sálin hrýtur. Eftir- farandi fullyrðingu ætti hins vegar enginn að lesa fyrr en eftir fyrsta kaffibolla: Hvað ef sál þín er aðeins sjónhverfing? Bandaríski vísindaheimspekingurinn Daniel Dennett hafnar aðskilnaði líkama og sálar og líkir heilanum við tölvu. Hann segir mannshugann vél, sem búin sé til úr milljörðum agnarsmárra vélmenna eða taugafruma. Inni í tölvum, rétt eins og inni í höfðinu á okkur, er flókinn vélbúnaðar sem fáir skilja. Til þess að við megum færa okkur vélina í nyt þurfum við notendavið- mót – takka, flipa og möppur – eða það sem forritarar kalla „notenda-sjónhverfingu“. Sálin er sambærileg sjónhverfing, að sögn Dennett. Vitund okkar er ekki annað en notendaviðmót heilans. Gagnvart okkur er veröldin full af fólki, dýrum, húsgögnum, bílum, krísum, kæti, tækifærum og mis- tökum; hún er full af fyrirbrigðum sem við getum bent á, hagrætt, stjórnað, elskað og hatað. Allt er þetta þó aðeins hluti af sjón- hverfingunni sem er notendaviðmótið. Hin eiginlega veröld er full af sameindum, frum- eindum, rafeindum, þyngdarafli, öreindum. Á mánudag opnuðu Bandaríkin landa- mæri sín fyrir bólusettum ferðamönnum frá Evrópu eftir tuttugu mánaða lokun vegna Covid-faraldursins. Fagnaðarlæti ómuðu á JFK-flugvellinum í New York. Gleðin ríkti víðar. Samtök smávöru- verslana í Bretlandi réðu sér ekki fyrir kæti þegar í ljós kom að verslun hefði aukist um 6,3 prósent borið saman við sama tíma árið 2019, fyrir Covid-faraldurinn. „Hlutirnir eru að komast í fyrra horf,“ sagði framkvæmda- stjóri samtakanna. Og fleiri fréttir af velgengni: Hagkerfi Frakklands hefur náð fyrri stærð eftir að hafa skroppið saman í Covid. Í Kína var vöruskiptajöfnuður í október hagstæðari en nokkru sinni fyrr, og það þrátt fyrir vanda- mál í aðfangakeðjum í kjölfar Covid. Fyrri hæðum var náð á enn öðru sviði: Samkvæmt nýrri rannsókn Háskóla East Anglia mun magn kolefnisútblásturs í heim- inum senn vera orðið það sama og það var fyrir Covid-faraldurinn. Meiri ógn en Covid Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna er að ljúka. „Við erum ekki á áætlun,“ var við- vörun loftslagsvísindamanna til stjórnvalda hinna fjölmörgu landa sem sóttu sam- komuna. Vísindaráðgjafi Bretlands sagði loftslagsbreytingar „meiri ógn en Covid“. Brýn hætta steðjar að okkur öllum. Þrátt fyrir það veigra ráðamenn sér við því að grípa til aðgerða sem haldið geta hækkun á meðalhita jarðar undir 1,5 gráðum. Þegar Covid-19 faraldurinn skall á lagðist millilandaflug af, það dró úr bílaumferð, neysla snarminnkaði og hagkerfi skruppu saman. Allt þóttu þetta vísbendingar um veröld á vonarvöl. Sú sýn var hins vegar sjón- hverfing. Við teljum veröldina vera eins og við sjáum hana. Gagnvart áhrifafólki á COP26 er veröldin verg landsframleiðsla, flutnings- leiðir, viðskiptahalli, lánalínur, kauphallir og fjárhagsáætlanir. Gagnvart okkur er veröldin umferðarteppan á Miklubraut, tvennutilboð Dominos, „singles day“, helgarferð til Köben. Allt er þetta þó aðeins notendaviðmótið. Hin eiginlega veröld er ekki Amazon.com heldur Amazon-regnskógurinn. Hin eiginlega ver- öld er O2, H2O, lofthjúpurinn, Grænlands- jökull, Golfstraumurinn. Mannshugurinn. Tölvan okkar. Ver- öldin. Notendaviðmótið er það sem blasir við. Sálarheill öðlumst við þó aðeins ef við hlúum að því sem er handan sjónhverfingar- innar. Ef við hugum ekki að vélbúnaðinum deyjum við. n Handan sjónhverfingarinnar Innco netverslun innconet.com Herkvíin Líklega eru um þrjátíu þúsund full- orðnir Íslendingar enn þá óbólusettir, af ástæðum sem rekja má til menningar- munar, trúarskoðana, kvíða, frelsisþrár, hugsjóna, svo og forherðingar, ofstækis og þvermóðsku, fyrir nú utan almennt bar- lómskrákuvæl. Núna, þegar heimsfaraldur kórónuveiru- plágunnar hefur þjakað samfélagið um bráðum tveggja ára skeið, alla innviði þess, atvinnulíf, menningu, félagslíf, samkomuhald, svo og lýð- heilsu aldraðra og ungmenna í skólum landsins, er eðlilegt að velta fyrir sér rétti óbólusettra í samfélaginu til að haga sér eins og þeim sýnist. Og meginspurningin er þessi: Er fullt frelsi óbólusettra verjanlegt á tímum alls konar tak- markana á háttum þeirra sem hafa valið að láta bólusetja sig af fúsum og frjálsum vilja og hafa einsett sér að fara að tilmælum sóttvarnayfir- valda? Víða í löndunum í kringum okkur liggur svarið við þessari spurningu fyrir. Og það er bæði einart og afdráttarlaust. Nei. Hreint og klárt nei. Skoðum okkur um. Í Singapúr ganga yfirvöld einna lengst, en þar mæta óbólusettir afgangi í heilbrigðisþjónustu og rætt er af alvöru um að þeir fái ekki inngöngu á spítala á meðan spítalarnir í landinu glíma við álagið af völdum farsóttarinnar. Í Póllandi er starfsmönnum fyrirtækja og stofnana gert að fara í bólusetningu, hvort sem þeim líkar betur eða ver, ella er þeim sagt upp störfum – og vinnurétturinn er ekki sagður meiri en svo að bætur verði engar fyrir brottvísunina. Í Saxlandi, tíunda stærsta sambandsríki Þýskalands, hefur samfélaginu verið skipt upp í tvo misréttháa hópa, þá bólusettu og óbólusettu, en kerfið er kallað 2G; þeir einir fá að fara inn á kvikmyndahús, tónleika, leikhús, veitingahús og bari sem eru geimpft og genesen, það er, bólu- settir eða læknaðir. Hinir geta lifað í frelsi sínu, utan við annað fólk. Enn sem komið er mega óbólusettir nota almenningssamgöngur í Saxlandi, en allsendis óvíst er að svo verði lengi. Í þá veru er einmitt umræðan í Berlín, höfuðborg Þýskalands, en ef smittölur hækka er líklegt talið að borgar- stjórinn banni óbólusettum að nota lestarkerfi borgarinnar, strætisvagna og leigubíla. Rökin eru þessi: Um 95 prósent þeirra sem liggja inni á sjúkrahúsum landsins, þjakaðir af einkennum kórónuveirunnar, eru óbólusett. Þeir eru klafi á kerfinu. Þeir halda því í herkví. Núna verða Íslendingar að spyrja sig þess- ara sömu spurninga sem svör hafa fengist við í téðum löndum. n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 13. nóvember 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.