Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 24

Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 24
 þau í tónlistarnám og fór hún að sækja píanótíma átta ára. „Ég var þó byrjuð að spila og semja fyrr, tók upp á kasettutæki og gerði tilraunir. Það var minn heimur löngu áður en ég byrjaði að syngja. Tengingin var svolítið trúarleg því mér fannst þetta sem aðgengi að einhverju miklu stærra, guðdóm- legu, heimi sem var endalaus.“ Efaðist aldrei um að geta sungið Árið 1990 prófaði Móa í fyrsta sinn að opna á annað hljóðfæri sem svo átti eftir að verða hennar aðals- merki, röddina. Þá keppti hún fyrir hönd Menntaskólans í Reykjavík í Söngkeppni framhaldsskólanna sem þá var haldin í fyrsta sinn. „Ég hafði aldrei sungið neitt en fann að ég varð að gera þetta. Ég efaðist aldrei um að geta sungið, með alla þessa söngvara í kringum mig. En ég sagði ekki einu sinni fjöl- skyldunni að ég væri að taka þátt – þau bara sáu mig í sjónvarpinu.“ Móa valdi lagið Everytime we say goodbye sem Ella Fitzgerald gerði ódauðlegt á sínum tíma. „Standard lag sem ég flutti við píanó- og selló- undirleik og vann forkeppnina.“ En þar með er ekki öll sagan sögð því Móeiður þurfti sannarlega að hafa fyrir því að komast á svið í lokakeppninni. Eftir forkeppnina voru settar reglur um að allir skyldu syngja á íslensku og því þurfti að endurtaka forkeppnina og aftur tók Móa þátt. „Þá valdi ég lagið Bláu augun þín, vann aftur og flutti það í loka- keppninni.“ Stofnuðu djassband baksviðs Þessi fyrsta Söngkeppni fram- haldsskólanna er kannski ekki síst eftirminnileg fyrir það hverjir hrepptu annað og þriðja sætið. Móeiður Júníusdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarfólk sem átti sannarlega eftir að láta að sér kveða næstu árin komu þarna þétt á eftir sigurvegaranum, Lárusi Inga Magn- ússyni, sem minna hefur heyrst í. „Þetta er lexía um að það skiptir ekki öllu að vinna heldur hvernig þú nýtir tækifæri þín,“ segir Móa, sem þó tók tapið nærri sér. „Stundum hefur maður gott af því að fá ekki allt upp í hendurnar. Þarna kynntumst við Páll Óskar, enda bæði sérvitrir unglingar að hlusta á djass, blús og söngleikjatónlist.“ Baksviðs í aðalkeppninni var þannig stofnað djassband. „Við hóuðum saman tónlistar- mönnum sem eru fremstir í sinni röð í dag: Jóel Pálssyni og Einari Scheving. Bandið hét fyrst Móa, Palli og búðingarnir, en okkur fannst við þurfa að vera virðulegri og breyttum nafninu í Djazzband Reykjavíkur og spiluðum fyrir fólk á öllum aldri. Upp úr þessu fór ég að svo að spila með píanóleikaranum Karli Olgeirs- syni, sem var líka kornungur að spila alls konar skrítna tónlist.“ Leið best syngjandi á sviði Þarna var grunnurinn lagður og Móa söng á menntaskólaárunum gamla standarda, ein með píanista á börum um helgar og oft á virkum dögum. „Við spiluðum úti um allt og í alls konar aðstæðum og innan um drukkið fólk. Það var æðislegur skóli, ef maður getur látið það virka getur maður látið flest virka.“ Móa hafði alltaf verið góður náms- maður svo flestir héldu að hún færi hina beinu akademísku leið, yrði til dæmis lögfræðingur. „En þegar ég byrjaði að syngja fann ég að ég væri á réttum stað. Mér leið best syngjandi á sviði og upplifði aldrei sviðsskrekk.“ Eftir nokkur ár þar sem Móa söng annarra lög fann hún aftur þörfina til að semja tónlist. Hún gerði þá upp djasstímabilið með plötu og var svo ákveðin í að leggja það tímabil til hliðar og fara nýja leið. Stórir draumar og útgáfusamningar „Ég gaf næst út plötu með dúóinu Bong sem ég var í með þáverandi eig- inmanni mínum, Eyþóri Arnalds og kom hún út árið 1994. Rafmagnstón- list og rave-menningin var mikið að koma inn og þetta voru spennandi tímar. Ég var strax ákveðin í að ég vildi syngja á ensku því mig langaði að fara út og var með stóra drauma. Ég yfirgaf það sem hafði gengið rosa- lega vel og langaði að gera annað.“ Bong gerði samning við breskt plötufyrirtæki sem gaf út smáskífu sem gerði ágætis hluti á klúbbunum í London. „Ég fór út og kom fram ein á klúbbum með „play back“. Bretland var eins og Mekka fyrir okkur sem vorum að pæla í þessari tegund tón- listar og þetta var magnað tímabil.“ Samböndin sem Móa byggði upp í Bretlandi þróuðust út í sólóverkefni hennar og plötuna Universal. „Ég gerði útgáfusamning við Tommy Boy, frábært útgáfufyrirtæki á Man- hattan sem er frumkvöðull í hipp hopp-tónlist. Ég var með hvítustu artistunum hjá þessu fyrirtæki en samningurinn var nokkuð stór.“ Var orðin söluvara Platan kom út í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan og Móa ferðaðist víða með bandi sínu, sem meðal annars bræður hennar, tvíburarnir Kristinn og Guðlaugur, sem settu líf hennar úr skorðum um fjögurra ára aldurinn, skipuðu. „Ég hitaði meðal annars upp fyrir Moby og þetta voru spennandi tímar.“ Móa hafði sett sér það markmið að vera komin með góðan plötusamn- ing fyrir 25 ára aldurinn og það rétt tókst. En draumar sem rætast eru ekki alltaf eins og vonast hafði verið til. „Þetta var allt annar heimur en ég hafði vanist.“ Móa gerði samning upp á nokkrar plötur og fékk fyrir hann fyrirfram- greiðslu. Útgáfufélagið aftur á móti sá um kostnaðarsama framleiðslu, myndbönd og markaðssetningu. „Þarna var ég orðin söluvara og sat fundi þar sem fundargestir voru aðal- lega karlar og umræðuefnið hvernig best væri að markaðssetja mig. Þetta er harður bissness. Það er talað um mann í þriðju persónu en maður situr á staðnum.“ Móa fann jafnframt fyrir pressu um að standa sig, það væri fólk að treysta á hana. „Maður er orðinn söluvara og það er verið að leggja pening í „vöruna“. Allt í einu var það ekki bara ég að koma fram eins og ég var vön. En sjálf hafði ég ekki hugsað lengra en bara þessa plötu.“ Ég var komin á endastöð Móa fann sig ekki í þessum stóra heimi og tók ákvörðun um að stíga til hliðar og fara aftur heim en áhrif- in voru djúpstæð. „Í fyrsta lagi var ég komin á enda- stöð. Ég var hætt að vera forvitin. Ég hafði alltaf haft aðgang að þessum heimi sem tónlistin er – fyrir mér var það fallegur heimur og að einhverju leyti trúarlegur. Þarna var þetta bara orðið bissness. Ég var orðin bissness og röddin mín. Þú ert að selja sjálfan þig og það gengur alveg nærri manni, það gerir það. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sjálfsmyndinni, hún og það hvernig hún verður til er mér mjög hugleikið. Ég held að ég hafi svolítið lent í því að röddin mín tók yfir. Ég fékk alltaf svo mikið hrós fyrir sönginn að hún tók eiginlega bara yfir sjálfsmynd mína og það er pínu hættulegt.“ Móa tók ákvörðun um að hætta að syngja. „Það var meðvituð ákvörðun enda er mér illa við að láta bara eitt- hvað gerast. Svo ég tók harða afstöðu um að syngja ekki,“ segir hún, en viðurkennir að það hafi tekið á. Langaði að eignast fjölskyldu En gleðin var farin og því fannst Móu ótækt að halda áfram. „Ég kom heim og mig langaði hvorki að syngja né gera tónlist. Ég var 28 ára og komin með algjört ógeð á öllu sem þessu fylgdi. Ég hugsaði með mér að ég nennti ekki í enn eitt boðið,“ segir Móa. Hún vissi þó að hana langaði, eins og frá unga aldri, að eignast fjöl- skyldu. „Ég var svo heppin að verða fljót- lega ófrísk og eignaðist eldri börnin mín með f y rrum eiginmanni mínum, með stuttu millibili. Ég held að það sé mín mesta gæfa og að ég hafi sloppið svolítið fyrir horn. Ég hefði aldrei orðið glöð né hamingju- söm ef ég hefði haldið áfram í því sem ég var að gera erlendis. Ég hefði aldrei þroskast sem manneskja enda var ég komin á ákveðna endastöð.“ Móðurhlutverkið átti vel við Móu en stuttu eftir að börnin komu í heiminn skildu þau Eyþór eftir langt Svo þegar hún var ekki lengur aðalatriðið sem maður speglaði sig i, allt það sem fólk hafði dáðst að, þá stóð bara eftir ég – svolítið á víðavangi. Ég var orðin bissness og rödd- in mín. Þú ert að selja sjálfan þig og það gengur alveg nærri manni, það gerir það. samband. „Líf mitt gjörbreyttist á f lestum sviðum. Þegar ég hætti fyrst að syngja vissi ég ekkert hver ég var. Ég sem hafði alltaf verið með mjög sterka sjálfsmynd, enda alltaf haft röddina. Svo þegar hún var ekki lengur aðalatriðið sem maður speglaði sig í, allt það sem fólk hafði dáðst að, þá stóð bara eftir ég – svo- lítið á víðavangi.“ Guðfræðin sem himnasending Móa hafði alltaf haft gaman af því að læra og verið mikill grúskari og hana langaði að finna þann hluta af sér aftur. Hún fór að skoða háskóla- nám og endaði á að skrá sig í guð- fræði. „Þar leið mér eins og fiski í vatni enda fjölbreytt nám og ofsalega gott tækifæri til að hugsa og spegla hlut- ina. Ég held að það hafi verið algjör himnasending fyrir mig að enda í lítilli deild með alls konar fólki og fá þessa innspýtingu. Ég sá fyrir mér að verða prestur.“ Móa kláraði guðfræðina og hóf doktorsnám í faginu en samhliða kláraði hún jafnframt uppeldis- og menntunarfræði og fékk kennslu- réttindi. „Ég hætti í doktorsnáminu því mig grunaði að það hefði leitt til þess að ég yrði bara sérvitringur úti í horni,“ segir hún og hlær. Móa varð ekki prestur en réði sig sem grunn- skólakennara fyrir sjö árum og fann strax að þar ætti hún heima. „Ég hef mikinn áhuga á menntakerfinu sem ég tel eitt það mikilvægasta í okkar samfélagi. Ég hef skoðað vel trúaruppeldi eða andlegt uppeldi og trúarbragðafræði. Þannig hef ég haldið tengslum við þetta fræða- grúsk mitt,“ segir Móa, sem jafn- framt kennir unglingum íslensku og finnst það bæði skemmtilegt og verðugt verkefni. Eftir tuttugu ára þögn kom tónlistin aftur inn í líf Móu fyrir skömmu. „Sonur minn er í hljóm- sveit og tónlistin er því komin fyrir alvöru inn á heimilið,“ segir Móa, sem er farin að semja aftur. „Þetta byrjaði brotakennt, ég fór að taka upp á símann og syngja inn laglínur og svo jókst þetta.“ Lögin streymdu til mín „Ég get ekki lýst þessu en ég átti erfitt með að hlusta á tónlist, sem hafði verið líf mitt. Það olli mér dálitlum sársauka. Svo fór þetta að koma aftur og lögin streymdu til mín,“ segir Móa, sem ákvað að hafa samband við gamlan kunningja og upptökustjóra og taka upp, ekkert endilega til að gefa út. „En þessi tónlistargleði kom aftur og það var svo dásamlegt.“ Eiginmaður Móu og börnin þrjú höfðu aldrei heyrt hana syngja nema á upptökum en hafa stutt hana í að snúa aftur í tónlistina. Á dögunum kom út á Spotify lagið Pure sem Móa semur og flytur og segist hún þakklát fyrir góð viðbrögð. „Enda er það ekkert sjálfgefið, sérstaklega ekki eftir langan tíma. Maður bara kastar þessu út í loftið og sér til. Ég held að það tengist líka svolítið aldrinum og því hvar maður er staddur,“ segir Móa. „Maður verð- ur pínulítið unglingur aftur, maður er búinn að gefa svo mikið í börnin og þegar þau stækka skapast ákveð- ið rými,“ segir hún að lokum. n Móa segir tón- listargleðina komna aftur og það sé dásam- leg tilfinning. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI 24 Helgin 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.