Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 30

Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 30
Við gerum þær oft um helgar þegar tíminn er nægur og kósí að byrja daginn á því að dúllast í því og bjóða síðan upp á dásamlegheitin í hádegismatnum. Berglind Hreiðarsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir matar- blogg sitt og matreiðslubækur en nú leitar hún á nýjar slóðir með samstarfsverkefni með tólf ára dóttur sinni Elínu Heiðu Hermannsdóttur og er afraksturinn bókin Börnin baka. Berglind hefur lengi haldið úti vefsíðunni Gotterí og gersemar þar sem hún birtir reglulega girni- legar uppskriftir. Hún er jafnframt þriggja barna móðir og segist leyfa dætrunum að taka þátt í elda- mennsku og bakstri allt frá því að þær geti staðið uppi á stól og sýni því áhuga að taka þátt. „Það er pínu þannig að maður þarf að velja hvenær hentar að leyfa börnunum að taka þátt. Stundum er maður auðvitað bara á síðustu stundu að græja kvöldmatinn, í veisluundirbúningi eða öðru og ekki endilega það besta að fá litlar hendur með til að aðstoða þá, nema þær séu þá aðeins komnar með reynslu,“ segir Berglind, aðspurð hvenær sé helst tími til að leyfa litlum höndum að taka þátt. „Það þarf að gefa sér tíma til að kenna þeim og vera tilbúinn í sóðaskapinn með þolinmæðina að vopni þegar þau eru ung,“ segir hún í léttum tón. „Því er gott að ákveða einfaldar uppskriftir til að byrja með og leyfa þeim að gera það sem þau geta sjálf og aðstoða við annað og velja tíma sem hentar öllum til að eiga slíkar gæðastundir.“ Lúxus þegar þau geta bakað sjálf „Síðan eldast þau og verða meira sjálf bjarga, eins og Elín Heiða er orðin núna og þá er svo mikill lúxus að leyfa þeim að baka og elda fyrir sig og finna það að hægt er að treysta þeim í eldhúsinu,“ segir Berglind, en bætir við að stundum séu bökuð vandræði og uppskriftir misheppnist. „Það er allt partur af prógramminu en öðruvísi lærum við víst ekki og þá gengur bara betur næst.“ Elín Heiða bakar með móður sinni í nýútkominni bókinni og Þetta snýst um samveruna Mæðgurnar Berglind og Elín Heiða hafa gaman af því að baka saman og ákváðu að leyfa fleirum að njóta með bókinni Börnin baka sem er nýút- komin. MYND/LÁRUS SIGURÐARSON Snákabollur 18-20 stykki Einfaldar brauðbollur verða klárlega meira spennandi fyrir börn, í snákalíki. Þeim finnst líka skemmtilegra að fá að baka þegar það má leika sér aðeins með hrá- efnið. 120 g smjör 350 ml nýmjólk 1 bréf þurrger (11,8 g) 100 g sykur 670 g hveiti 1 tsk. salt 1 pískað egg Rúsínur Ávaxtalengja Sesamfræ Matarlitur Bræðið smjörið í potti og hellið mjólkinni saman við þegar það er bráðið. Hitið saman við vægan hita þar til ylvolgt (hægt er að setja fingurinn ofan í án þess að finnast blandan heit). Hellið mjólk urblöndunni þá yfir í skál/könnu og hrærið þurrgerinu saman við, leyfið að standa á meðan annað er undir- búið. Setjið hveiti, salt og sykur í hrærivélarskálina, gott að nota krókinn til að hnoða. Hellið mjólkurblöndunni var- lega saman við og hnoðið þar til slétt og fín deigkúla hefur mynd- ast. Gott er að hafa deigið eins klístrað og þið komist upp með, án þess þó að það festist við alla fingur og fleti. Stundum þarf að bæta smá hveiti við en reynið að sleppa við það. Smyrjið stóra skál að innan með matarolíu, hnoðið deigið stutta stund í höndunum og velt- ið næst upp úr olíunni í skálinni, plastið skálina og leyfið að hefast í 1 klukkustund. Skiptið deiginu þá niður í 18-20 einingar, rúllið í bollur og mótið snák á bökunarpappír á bök- unarplötu, gott að hafa um ½ cm á milli bollanna. Hefið aftur í um 30 mínútur og hitið ofninn á meðan í 210°C. Penslið með pískuðu eggi, strá- ið sesemfræjum yfir og stingið rúsínum hingað og þangað til að skreyta snákinn. Hægt er að nota ávaxtastöng til að skera út fyrir tungu. Til þess að lita sesamfræ má setja nokkra dropa af matarlit í bolla og hella sesamfræjum ofan í og hræra saman með skeið. Passa bara að hafa mjög lítinn lit svo þau verði ekki blaut. Gott að hella þeim síðan á pappír og leyfa þeim að þorna þannig áður en þau eru notuð. Bakið í um 10-12 mínútur eða þar til bollurnar gyllast. n Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is þegar þær eru spurðar hvað þeim finnist skemmtilegast að baka saman, svarar Elín Heiða pipar- kökur án þess að blikna, enda svo gaman að skreyta þær. „Við höfum prófað nokkur mis- munandi piparkökudeig en síðan má líka alveg kaupa bara tilbúið deig og f letja það beint út fyrir þá sem hafa minni tíma. Þetta snýst fyrst og fremst um samveruna og skreytingarnar, stelpurnar mínar elska að skreyta með glassúr,“ segir Berglind. Þær mæðgur baka nokkuð oft og koma brauðbollur fyrst í hugann þegar þær eru spurðar hvað sé algengast. „Við gerum þær oft um helgar þegar tíminn er nægur og kósí að byrja daginn á því að dúllast í því og bjóða síðan upp á dásamlegheitin í hádegismatnum.“ Berglind segir dæturnar hafa gaman af því að útbúa einhverjar fígúrur úr bollunum og raði þeim oftar en ekki í snák, blóm eða eitt- hvað annað sniðugt. n Einfaldar brauðbollur eru vinsælar á heimili þeirra mæðgna en þær verða enn meira spennandi fyrir börnin í snákalíki eins og sjá má hér. 30 Helgin 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.