Fréttablaðið - 13.11.2021, Blaðsíða 30
Við gerum þær oft um
helgar þegar tíminn er
nægur og kósí að byrja
daginn á því að dúllast
í því og bjóða síðan
upp á dásamlegheitin í
hádegismatnum.
Berglind Hreiðarsdóttir hefur
getið sér gott orð fyrir matar-
blogg sitt og matreiðslubækur
en nú leitar hún á nýjar slóðir
með samstarfsverkefni með
tólf ára dóttur sinni Elínu
Heiðu Hermannsdóttur og er
afraksturinn bókin Börnin
baka.
Berglind hefur lengi haldið úti
vefsíðunni Gotterí og gersemar
þar sem hún birtir reglulega girni-
legar uppskriftir. Hún er jafnframt
þriggja barna móðir og segist leyfa
dætrunum að taka þátt í elda-
mennsku og bakstri allt frá því að
þær geti staðið uppi á stól og sýni
því áhuga að taka þátt.
„Það er pínu þannig að maður
þarf að velja hvenær hentar að leyfa
börnunum að taka þátt. Stundum
er maður auðvitað bara á síðustu
stundu að græja kvöldmatinn, í
veisluundirbúningi eða öðru og
ekki endilega það besta að fá litlar
hendur með til að aðstoða þá, nema
þær séu þá aðeins komnar með
reynslu,“ segir Berglind, aðspurð
hvenær sé helst tími til að leyfa
litlum höndum að taka þátt.
„Það þarf að gefa sér tíma til
að kenna þeim og vera tilbúinn í
sóðaskapinn með þolinmæðina að
vopni þegar þau eru ung,“ segir hún
í léttum tón. „Því er gott að ákveða
einfaldar uppskriftir til að byrja
með og leyfa þeim að gera það sem
þau geta sjálf og aðstoða við annað
og velja tíma sem hentar öllum til að
eiga slíkar gæðastundir.“
Lúxus þegar þau geta bakað sjálf
„Síðan eldast þau og verða meira
sjálf bjarga, eins og Elín Heiða er
orðin núna og þá er svo mikill
lúxus að leyfa þeim að baka og elda
fyrir sig og finna það að hægt er
að treysta þeim í eldhúsinu,“ segir
Berglind, en bætir við að stundum
séu bökuð vandræði og uppskriftir
misheppnist. „Það er allt partur af
prógramminu en öðruvísi lærum
við víst ekki og þá gengur bara betur
næst.“
Elín Heiða bakar með móður
sinni í nýútkominni bókinni og
Þetta snýst um
samveruna
Mæðgurnar
Berglind og
Elín Heiða hafa
gaman af því að
baka saman og
ákváðu að leyfa
fleirum að njóta
með bókinni
Börnin baka
sem er nýút-
komin.
MYND/LÁRUS
SIGURÐARSON
Snákabollur
18-20 stykki
Einfaldar brauðbollur verða
klárlega meira spennandi fyrir
börn, í snákalíki. Þeim finnst líka
skemmtilegra að fá að baka þegar
það má leika sér aðeins með hrá-
efnið.
120 g smjör
350 ml nýmjólk
1 bréf þurrger (11,8 g)
100 g sykur
670 g hveiti
1 tsk. salt
1 pískað egg
Rúsínur
Ávaxtalengja
Sesamfræ
Matarlitur
Bræðið smjörið í potti og hellið
mjólkinni saman við þegar það
er bráðið. Hitið saman við vægan
hita þar til ylvolgt (hægt er að
setja fingurinn ofan í án þess að
finnast blandan heit).
Hellið mjólk urblöndunni
þá yfir í skál/könnu og hrærið
þurrgerinu saman við, leyfið að
standa á meðan annað er undir-
búið.
Setjið hveiti, salt og sykur í
hrærivélarskálina, gott að nota
krókinn til að hnoða.
Hellið mjólkurblöndunni var-
lega saman við og hnoðið þar til
slétt og fín deigkúla hefur mynd-
ast. Gott er að hafa deigið eins
klístrað og þið komist upp með,
án þess þó að það festist við alla
fingur og fleti. Stundum þarf að
bæta smá hveiti við en reynið að
sleppa við það.
Smyrjið stóra skál að innan
með matarolíu, hnoðið deigið
stutta stund í höndunum og velt-
ið næst upp úr olíunni í skálinni,
plastið skálina og leyfið að hefast
í 1 klukkustund.
Skiptið deiginu þá niður í 18-20
einingar, rúllið í bollur og mótið
snák á bökunarpappír á bök-
unarplötu, gott að hafa um ½ cm
á milli bollanna.
Hefið aftur í um 30 mínútur og
hitið ofninn á meðan í 210°C.
Penslið með pískuðu eggi, strá-
ið sesemfræjum yfir og stingið
rúsínum hingað og þangað til
að skreyta snákinn. Hægt er að
nota ávaxtastöng til að skera út
fyrir tungu.
Til þess að lita sesamfræ má
setja nokkra dropa af matarlit í
bolla og hella sesamfræjum ofan í
og hræra saman með skeið. Passa
bara að hafa mjög lítinn lit svo
þau verði ekki blaut. Gott að hella
þeim síðan á pappír og leyfa þeim
að þorna þannig áður en þau eru
notuð.
Bakið í um 10-12 mínútur eða
þar til bollurnar gyllast. n
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
þegar þær eru spurðar hvað þeim
finnist skemmtilegast að baka
saman, svarar Elín Heiða pipar-
kökur án þess að blikna, enda svo
gaman að skreyta þær.
„Við höfum prófað nokkur mis-
munandi piparkökudeig en síðan
má líka alveg kaupa bara tilbúið
deig og f letja það beint út fyrir þá
sem hafa minni tíma. Þetta snýst
fyrst og fremst um samveruna og
skreytingarnar, stelpurnar mínar
elska að skreyta með glassúr,“ segir
Berglind.
Þær mæðgur baka nokkuð oft og
koma brauðbollur fyrst í hugann
þegar þær eru spurðar hvað sé
algengast.
„Við gerum þær oft um helgar
þegar tíminn er nægur og kósí að
byrja daginn á því að dúllast í því og
bjóða síðan upp á dásamlegheitin í
hádegismatnum.“
Berglind segir dæturnar hafa
gaman af því að útbúa einhverjar
fígúrur úr bollunum og raði þeim
oftar en ekki í snák, blóm eða eitt-
hvað annað sniðugt. n
Einfaldar brauðbollur eru vinsælar á heimili þeirra mæðgna en þær verða
enn meira spennandi fyrir börnin í snákalíki eins og sjá má hér.
30 Helgin 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ