Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 42
Fjármálasérfræðingur
(Financial controller)
Vilt þú vinna í umhverfi sem stuðlar að stöðugri þróun? Nýtur þú þess að vinna með tölur, ferla
og umbætur? Viltu tilheyra teymi? Ef svo er gæti þetta verið starf fyrir þig!
dk hugbúnaður óskar eftir að ráða lausnamiðaða manneskju í stöðu fjármálasérfræðings. Viðkomandi mun
vinna náið með stjórnendum dk á Íslandi ásamt fjármálateymi dk og móðurfélagsins, Total Specific
Solutions (TSS), í Danmörku. Fjármálateymið ber ábyrgð á samstæðunni, reikningsskilum og mánaðar- og
ársfjórðungslegum skýrslum til stjórnenda og TSS.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og
Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Með umsókn skal
fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á ensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda
sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskipta-
og/eða fjármála
• 1-3 ára reynsla sem nýtist í starfi
• Mikil greiningarhæfni og talnagleggni
• Þekking á IFRS og íslenskum reikningsskilaaðferðum
• Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
• Mjög góð Excel kunnátta, reynsla af dk og Power BI
er kostur
• Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að vinna
bæði sjálfstætt og í teymi
• Lausnamiðuð hugsun, sveigjanleiki og drifkraftur
• Áætlanagerð, greiningar ásamt ráðgjöf og stuðningi við
stjórnendur í tengslum við fjármál
• Samvinna og stuðningur við aðra fjármálasérfræðinga
• Þátttaka í undirbúningi fjárfestingaverkefna og eftirfylgni
með þeim
• Aðstoð við áreiðanleikakannanir í tengslum við yfirtökur
• Ráðgjöf í tengslum við fjármálaferla
• Undirbúningur, uppsetning og viðhald stjórnendaupplýsinga
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni og ábyrgð:
dk hugbúnaður var stofnað árið 1998 og er í dag leiðandi fyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar hér á landi með rúmlega
6.000 fyrirtæki í viðskiptum. dk býður upp á mikið af sérlausnum sem henta fyrirtækjum í ólíkum atvinnugreinum hvort
sem þau eru stór eða smá. Hjá dk starfar um 65 manna sterk liðsheild og um árabil hefur dk fengið viðurkenningar sem
Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo og sem Fyrirmyndarfyrirtæki VR. Leiðarljós dk er að vera skemmtilegur vinnustaður
þar sem metnaðarfullir einstaklingar fá að njóta sín og þróast í starfi. Nánari upplýsingar um dk má finna á www.dk.is.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
4 ATVINNUBLAÐIÐ 13. nóvember 2021 LAUGARDAGUR