Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 46

Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 46
Elskar þú prótein? Nánari upplýsingar um félagið: orfgenetics.com I ORF Líftækni, Víkurhvarf 7 Kópavogi. Sérfræðingur í próteinhreinsun Menntun og reynsla MSc gráða í lífefnafræði eða sambærilegt Reynsla af störfum á rannsóknarstofu er nauðsynleg Reynsla af próteinvinnu (t.d. ELISA og Western blot) er nauðsynleg Reynsla af aðferðum próteinhreinsunar er kostur Vegna nýrra og spennandi verkefna auglýsir ORF Líftækni hf. eftir sérfræðingi við framleiðslu á próteinum á rannsóknarstofu félagsins í Kópavogi. Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember - umsókninni skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni. Sótt er um á Alfred.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. ORF Líftækni er leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu frumuvaka í plöntum sem eru meðal annars nýttir í BIOEFFECT húðvörulínu félagsins og seldir til rannsókna á lífvísindasviði. Nýjasta þróunarverkefni ORF Líftækni er framleiðsla á dýrafrumuvökum fyrir vistkjöt (stofnfrumuræktað kjöt). Leitað er að hæfileikaríkum sérfræðingi sem mun vinna með öflugu teymi í próteinframleiðsludeild við hreinsun á próteinum úr fræjum erfðabreyttra byggplanta. Áhersla er einnig lögð á áframhaldandi þróun afkastamikilla aðferða í útdrætti og hreinsun próteinanna og tengdra verkefna. Jafnframt að sinna öðrum verkefnum á sviði próteinlífefnafræði. Umsækjandinn þarf að vera áhugasamur um starfið og verkefnin sem því fylgja og geta unnið í góðu samstarfi við sérfræðinga og stjórnendur félagsins. frumkvæði og metnaði, nákvæmni og öguðum vinnubrögðum, færni í mannlegum samskiptum og góðri aðlögunarhæfni. Skrifstofur, rannsóknarstofa og framleiðsla ORF Líftækni er í Kópavogi auk þess sem félagið rekur eigið gróðurhús í Grindavík. Sérfræðingur í þjónustu við fagaðila í mannvirkjagerð Hefur þú áhuga á að stuðla að betri mannvirkjagerð á Íslandi? Sérfræðingur á sviði öryggis mannvirkja Starfs- og ábyrgðarsvið • Eftirlit, aðstoð og þjónusta við fagaðila í byggingariðnaði • Ráðgjöf og fræðsla um gæðastjórnunarkerfi til fagaðila í mannvirkjagerð • Samskipti við skoðunarstofur vegna úttekta á gæðastjórnunarkerfum • Móttaka, úrvinnsla mála og svörun fyrirspurna • Útgáfa starfsleyfa og löggildinga • Gerð og miðlun fræðsluefnis um mannvirkjagerð Hæfniskröfur • Tæknimenntun á háskólastigi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni • Reynsla af mannvirkjamálum eða tengdri starfsemi • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Góð íslensku- og enskukunnátta • Reynsla af opinberri stjórnsýslu og gæðastjórnunarkerfum er kostur • Mjög góð almenn tölvukunnátta NÁNARI UPPLÝSINGAR Um framtíðarstarf er að ræða og fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu sendar inn í gegnum Starfatorg. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur alla hæfa einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Jón Freyr Sigurðsson teymisstjóri á sviði Öryggis mannvirkja jon.sigurdsson@hms.is S. 440 6400 Laust er til umsóknar starf sérfræðings hjá HMS í teymi sem hefur eftirlit með og þjónustar fagaðila í mannvirkjagerð m.a. með því fylgja eftir að gerðar verði lögbundnar áfangaúttektir og þær skráðar í nýja mannvirkjaskrá og framkvæmdar skjala- og virkniskoðanir á gæðastjórnunarkerfum. Markmið HMS er að stuðla að öflugra samstarfi byggingariðnaðarins, sveitarfélaga og stjórnvalda og stuðla þannig að skilvirkara starfsumhverfi, öflugra eftirliti og betri upplýsingum um mannvirkjagerð. HMS vinnur nú að innleiðingu breyttra áherslna í eftirliti með mannvirkjagerð með samræmingu eftirlits byggingafulltrúa, markvissu eftirliti með fagaðilum og markaðseftirliti með byggingavörum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.