Fréttablaðið - 13.11.2021, Síða 69
Hellirinn er samfélagslegt
umhverfi fyrir karla með
krabbamein í blöðruhálsi
og aðstandendur þeirra.
Hluti af þessu umhverfi,
eins og stuðningshóparnir
Frískir menn, Blöðruhálsar
og Traustir makar, er þegar
starfandi í dag.
Krabbameinsfélagið Framför hefur
verið að byggja upp Hellinn sem er
félagslegt samfélag sem ætlað er að
verði sérhæft stuðningsumhverfi
fyrir karlmenn með krabbamein
í blöðruhálskirtli. Hluti af þessu
umhverfi, eins og stuðnings
hóparnir Frískir menn, Blöðru
hálsar og Traustir makar, er þegar
starfandi í dag.
Myndlíkingin Hellirinn
Hellirinn er myndlíking fyrir þá
staðreynd að eldri karlmenn eiga
það til að einangra sig og sækja
tilfinningalegan stuðning mest
til maka sinna. Markmiðið með
samfélaginu Hellinum er einmitt
að stuðla að aukinni félagslegri
virkni, fræðslu og betri lífsgæðum
hjá þessum hópi.
Staðið er fyrir fjölbreyttum
þáttum og viðburðum sem sumir
eru í hverri viku og aðrir sem eru
mánaðarlega og blandað er saman
mismunandi hlutum og upplifun.
Dagskráin tekur einnig mið af mis
munandi árstíðum.
Hugmyndir um tómstundahópa
Núna á árinu 2021 hefur verið
lagður grunnur að því að setja í
gang fjölbreytta hópa sem tengjast
áhugamálum karla með krabba
mein í blöðruhálskirtli.
Markmiðið er að hóparnir
stækki jafnt og þétt og megintil
gangurinn er að skapa nánd, efla
lífsgæði og leggja grunn að sam
skiptum og miðlun á milli karla
með krabbamein í blöðruháls
kirtli. Langtímamarkmiðið er að
skapa öflugt félagslegt umhverfi
fyrir karla með krabbamein í
blöðruhálskirtli.
Hér eru þær hugmyndir sem
stefnt er að til að byrja með:
■ Framför í veiði
■ Framför í golfi
■ Framför í knattspyrnu
■ Framför í líkamsrækt
■ Framför í handverki
■ Framför í list
Hugmyndir að umhverfi
VINAhópa
VINAhópar karla: Leggja grunn
að svæðabundnum hópum sem
væru sjálf bærir og nánari útfærsla
á samskiptum væri undir hverjum
hópi komið (sími, Zoom eða með
því að hittast).
VINAhópar maka: Koma á sam
skiptum (síma, Zoom eða að hitt
ast) á milli maka karlmanna með
krabbamein í blöðruhálskirtli.
Byggt væri á að hver hópur væri
sem mest sjálf bært umhverfi.
VINAhópar karla og heilsurækt:
Fara af stað með vikulegan tíma
í heilsurækt og hittast samhliða í
léttu kaffispjalli.
VINAgönguhópar: Setja í gang
vikulega léttar gönguferðir fyrir
karla með krabbamein í blöðru
hálskirtli og maka þeirra. Mark
miðið fyrir utan hreyfingu væri að
skapa tengsl á milli hjóna sem eru
að eiga við þetta verkefni, krabba
mein í blöðruhálskirtli. ■
Hellirinn stuðlar að aukinni félagslegri virkni
Markmiðið með samfélaginu Hellinum er einmitt að stuðla að aukinni félagslegri virkni, fræðslu og betri lífsgæðum
hjá karlmönnum sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein. MYND/AÐSEND
Krabbameinsfélagið Framför
var stofnað 12. febrúar 2007,
mest að tilstuðlan dr. Odds
Benediktssonar, prófessors
í tölvunarfræði við Háskóla
Íslands.
Eftir fyrirlestur Odds nokkrum
dögum áður, um mataræði og
krabbamein í versluninni Maður
lifandi, sátu nokkrir fundarmenn
eftir og ræddu saman um hve
umræðan um blöðruhálskrabba
mein færi hljótt. „Við ákváðum
að stofna félag karla, sem hefði
það að markmiði að afla fjár til að
auka umræðu og styrkja rann
sóknir á krabbameini í blöðruháls
kirtli (BHKK) og efla baráttuna
gegn því,“ segir Hinrik Greipsson,
stjórnarmaður hjá Krabbameins
félaginu Framför.
„Í fyrstu stjórn félagsins voru
kjörnir, auk Odds, Hinrik Greips
son, Einar Benediktsson, Jón G.
Ingvason, Guðni Á. Alfreðsson,
Hrafn Pálsson og Haukur L. Hauks
son.
Til þess að ná settu marki stofn
aði félagið Styrktarsjóð Krabba
meinsfélagsins Framfarar. Stofnfé
sjóðsins var kr. 1.000.000 sem var
gjöf frá Rolf Johansen og Co. ehf.
Með framlagi Styrktarsjóðs
Baugs Group að fjárhæð kr.
2.500.000 tókst ásamt hjálp margra
annara velunnara félagsins að fjár
magna verkefnið.
Félagið styrkti einnig útgáfu
bókarinnar Bragð í baráttunni,
eftir Denis Gingras og Richard Béli
veau, í þýðingu Þórunnar Hjartar
dóttur. Útgáfan var í höndum JPV
útgáfu. (bokalind.is/vara/bragd
ibarattunnimatursemvinnur
gegnkrabbameini/).
Auk þess hélt félagið málþing:
Krabbamein í blöðruhálskirtli
– meinið, greining, meðferð, for
varnir og félagsleg áhrif, og gaf út
upptöku af málþinginu á DVD
diski og dreifði ásamt eintaki af
bókinni til allra heimilislækna á
landinu svo og allra stuðnings
félaga Krabbameinsfélags Íslands.
Þetta var gert með stuðningi
Hárgreiðslustofunnar 101 Hár
hönnun í Reykjavík, en starfsmenn
hárgreiðslustofunnar gáfu Framför
afrakstur innkomu stofunnar einn
föstudag, þar sem hver mínúta var
bókuð, og innkoman var um kr.
700.000, sem Framför naut góðs af í
þetta verkefni.
Þá stóð félagið fyrir fyrirlestrum
og fundum sem snertu málefnið,
meðal annars fjölmennum fundi
um mataræði og krabbamein í
Háskólabíó, þar sem fenginn var
erlendur fyrirlesari, Jane Plant.
(canceractive.com/article/pro
fessorjaneplantyourlifeinyour
hands).
Oddur Benediktsson var for
maður félagsins frá upphafi til
dauðadags, 17. ágúst 2010. Þá féllu
frá þeir Haukur L. Hauksson (2010)
og Hrafn Pálsson (2016) og við
það lamaðist starfsemi félags
ins allverulega. Eftir nokkurt
hlé var reynt að halda starfsemi
félagsins gangandi næstu ár á
eftir, undir stjórn nýs formanns,
Guðmundar Arnar Jóhannssonar,
og var haldið áfram að safna fé til
styrktar umræðu um og rannsókna
á blöðruhálskirtilskrabbameini.
Meðal annars var safnað fé til
fjármögnunar kaupa Landspítala
á svonefndum Þjarki, það er tölvu
róbot sem notaður er við skurðað
gerðir á blöðruhálskirtli.
Framleiddir voru einnig sex
sjónvarpsþættir undir stjórn Sig
mundar Ernis Rúnarssonar, viðtöl
við karlmenn sem greinst höfðu
með meinið og reynslu þeirra af
vandamálinu.
Starfsemi félagsins lá niðri í
nokkur ár, eða þar til hópurinn
Frískir menn kom fram árið 2019
og ákvað að endurreisa félagið og
halda starfseminni áfram. Erum
við nú á fullri ferð að vekja athygli
og umræðu á BHKK með myndar
legum stuðningi Krabbameins
félagsins.
Með stuðningi þess hefur félagið
getað ráðið framkvæmdastjóra í
hlutastarf hjá félaginu. Hann heitir
Guðmundur G. Hauksson og hefur
lyft grettistaki í starfsemi félagsins,
með öflugri útgáfu aðgengilegra
upplýsinga um meinið, meðferðir,
samræður manna um reynslu
hvers annars, aðkomu maka, auk
kynningar félagsins á samfélags
miðlum um framtíðaráform á
starfi félagsins.
Miklar framfarir í greiningum
og meðferðum, bæði með tækjum
og lyfjum, hafa orðið á þessum
tíma og mikil þróun er í gangi. Sem
dæmi má nefna þróun í geislameð
ferðum. Vegna bættrar greiningar
tækni er hægt að beina geislum
nákvæmar en áður að meininu
sjálfu og þannig auka styrkleikann
á hnitmiðaðra svæði. Í framtíðinni
verður hægt að fækka og stytta
geislameðferðir.“
Hinrik nefnir að slagorðið Þú
gengur ekki einn og merkið Blái
trefillinn séu mjög mikilvægir
þættir í starfi Framfarar. „Framför
hefur skort slagorð og merki. Slag
orðið er mikilvægt til þess að skapa
tilfinningu manna sem greinast
með blöðruhálskirtilskrabbamein
og maka þeirra fyrir því samfélagi
sem við hjá Framför erum að skapa.
Að greinast með þetta krabbamein
er mikið áfall og mönnum hættir til
að einangrast. Við viljum að menn
og makar finni að hjá Framför fái
þeir stuðning sem þeir þurfa og
munu því ekki þurfa að ganga einir.
Merkið Blái trefillinn er hluti af
söfnunarátaki sem er fram undan.
Starfið hefur til þessa hvílt á einum
harðduglegum framkvæmdastjóra,
Guðmundi G. Haukssyni, sem var
ráðinn í hlutastarf en hefur unnið
meira en fullt starf. Við erum með
fjölda hugmynda til þess að skapa
það samfélag og bæta lífsgæði
þeirra sem greinast. Til þess að
koma þessum hugmyndum okkar í
framkvæmd þarf Framför starfs
fólk og fjármagn og er fjáröflun
með sölu á Bláa treflinum stærsti
þátturinn í að takmarkinu verði
náð.“ ■
Ákváðu að stofna félag karla
Hinrik Greipsson hefur verið meðlimur frá því að Krabbameinsfélagið Framför var stofnað. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hjá Framför viljum við að karlmenn og makar þeirra fái stuðning.
Langtímamark-
miðið er að skapa
öflugt félagslegt
umhverfi fyrir karla
með krabbamein í
blöðruhálskirtli.
7LAUGARDAGUR 13. nóvember 2021 BLÁI TREFILLINN