Fréttablaðið - 13.11.2021, Qupperneq 90
Stundum
hef ég litið
á fólk og
hugsað:
Hefði þessi
orðið
nasisti eða
hefði hann
ekki orðið
það? Ég
giska á að
hún hefði
orðið það.
Í bókinni er ég líka að
velta því upp hvaða
áhrif gildin og við-
miðin sem hafa dunið
á okkur síðustu árin
hafa haft á geðheilsu
okkar og hugarfar.
Kolbeinsey er titill nýjustu
skáldsögu Bergsveins Birgis-
sonar. Bókin kemur samtímis
út hér á landi og í Noregi.
Söguþráðurinn er á þá leið að maður
heimsækir þunglyndan vin sinn á
geðdeild. Hjúkrunarkona tekur
heimsókninni illa og reynist svo
viðskotaill að vinirnir taka það ráð
að strjúka af spítalanum. Hjúkr-
unarkonan veitir þeim eftirför.
„Í stuttu máli er þetta bók um
samband samfélags og geðheilsu,“
segir Bergsveinn. „Hún er samfélags-
leg í hugsun sinni, það er að segja
þar er því velt upp hvað það sé sem
gerir fólk þunglynt, hvað verður til
þess að það lendir utanveltu, hvað
tekur við fyrir utan og er einhver
leið til baka? Þetta er stórt og yfir-
gripsmikið þema og ég nota ýmis
fornfáleg skáldskapartól til að taka
á þessu efni.“
Var hann lengi að skrifa bókina?
„Ég hef verið að dútla við þessa
bók í allavega sjö til átta ár og byrjaði
að skrifa skáldaða ævisögu. Þróunin
varð hins vegar sú að þessir karakt-
erar fóru að birtast og ég tók mig og
mitt persónulega líf út úr verkinu, í
eins konar uppreisn gegn veruleika-
bókmenntum. Mér finnst raunsæjar
veruleika-bókmenntir, til dæmis
þar sem fólk er að sýna inn í líf sitt
gegnum skráargöt, ekki ná utan um
mannssálina. Það mikilvæga af því
sem ég hef reynt og upplifað reyni ég
að koma til skila í gegnum karakt-
erana, ég fór úr því persónulega yfir
í það sammannlega.“
Margbrotin persóna
Hjúkrunarkonan er afar áberandi
á sögusviðinu en persóna hennar
er nánast yfirþyrmandi. Um þessa
voldugu sögupersónu sína segir
Bergsveinn: „Maddaman er marg-
brotin og það sem ég kalla „opin“
persóna. Það þýðir að hún fellur ekki
að neinni ákveðinni manngerð eða
kategóríu, og þó maður bendi á eitt
þá er hún annað líka – dálítið eins
og kaosið hið innra. Þegar kemur
að sálrænu lífi mannsins er erfitt
að aðskilja persónu frá samfélagi.
Það er hægt í teoríu, en ekki í praxís.
Við tökum þátt og tileinkum okkur
gildi og viðmið samfélagsins, sem
síðan virka beint inn á andlega líðan
okkar. Maddaman er þarna á milli –
stríðið.“
Blaðamaður spyr hvort ekki megi
líta á maddömuna sem fulltrúa
valdsins og kerfisins. „Það væri ágæt-
is lestur á hana,“ segir Bergsveinn og
bætir við: „Það er annað sem ástæða
Samband samfélags og geðheilsu
Ég hef verið að
dútla við þessa
bók í allavega
sjö til átta ár,
segir Berg-
sveinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
er til að óttast í sambandi við hana,
sem er hversu undirgefin hún er
gagnvart tímunum, að því leyti að
hún er tilbúin að afskrifa tilfinn-
ingalitróf og gildi, sem manneskjan
hefur þróað með sér í árþúsundir.
Hið átakalausa í þessu finnst mér
mjög skuggalegt. Stundum hef ég
litið á fólk og hugsað: Hefði þessi
orðið nasisti eða hefði hann ekki
orðið það? Ég giska á að hún hefði
orðið það. Það var mjög mikilvægt
fyrir mig að ná fram þessu skiln-
ingsleysi sem er á milli hennar og
þunglynda vinarins og því hvernig
hann ógnar tilveru hennar.“
Þunglyndi vinurinn hefur margt
til málanna að leggja í sögunni. „Já,
hann hefur líka mjög langa sögu á
bak við sig, sjálfan húmanismann
vil ég meina, sem listir og bók-
menntir hafa þróað fram í árþús-
und. Hann vitnar í heimspekinga
og rithöfunda og það er greinilegt
að það er mjög mikil togstreita milli
hans og maddömunnar. Ég held að
það sé vegna þess að hún skilur
hann ekki og óttast hann vegna
þess að hann er óútreiknanlegur
og á skjön við hennar heimsmynd.
Í bókinni er ég líka að velta því
upp hvaða áhrif gildin og viðmiðin
sem hafa dunið á okkur síðustu
árin hafa haft á geðheilsu okkar og
hugarfar.“
Sálrænt ferðalag
Þegar líður á söguna fer hún í ýmsar
óvæntar áttir. Er þetta kannski
furðusaga? „Ég myndi kalla hana
yfirraunsæja,“ segir Bergsveinn.
„Þessi uppdeiling á sjálfi sem þarna
verður er vandlega hugsuð. Þegar
kemur að mannssálinni held ég að
súrrealistarnir hafi haft alveg rétt
fyrir sér, það þarf að ýkja og jafnvel
draga hluti út í það absúrda til að
sjá þá almennilega, einkum þegar
kemur að sálrænum veruleika. Þess
vegna dreg ég upp ýktar myndir,
en það er hugsun á bak við absúrd-
ismann – það er tilfinning fyrir tím-
unum.
Sem ferðalag inn á við finnst mér
sagan vera raunsæ. Takmarkið var
að gefa mynd af einhvers konar sál-
rænu ferðalagi. Það er gömul trú og
ný að engin hugmyndafræði muni
frelsa okkur, húmanisminn bendir
á að maður verði að þekkja sjálfan
sig og sín takmörk. Það er leiðin
til hamingjunnar. Þetta er mynd
af ferli í leit að sátt við það sem ég
kalla grunntilfinningar, tilfinn-
ingarnar sem eru meira eða minna
ósýnilegar en stjórna okkur samt –
og það miklu meira en fólk vill trúa.
Þetta er ekki sjálfshjálparbók en hún
fjallar um slíkt ferðalag inn í grunn-
tilfinningarnar, sem aftur getur gert
ástandið hið innra þolanlegra.“ n
kolbrunb@frettabladid.is
Reykjavík Dance Festival verður
haldin hátíðleg dagana 17. til 20.
nóvember næstkomandi víðs vegar
um borgina.
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir opnar
hátíðina með frumsýningu á verki
sínu, When the Bleeding Stops, og
Sveinbjörg Þórhallsdóttir frumsýn-
ir nýtt verk, Rof. Jón Gnarr syngur
Völuspá á skemmtistaðnum Húrra.
DJ Ívar Pétur þeytir skífum fyrir
yngstu áhorfendurna á Baby Reif á
Kex Hosteli.
Reykjavík Dance Festival og
List án landamæra tóku höndum
saman þetta árið í listrænu stefnu-
móti en á hátíðinni munu þrjú
pör dansara og listamanna með
fatlanir sýna afrakstur vinnuferlis
sem hefur átt sér stað undanfarna
mánuði.
Hátíðin er fyrsta stóra hátíð
nýrra listrænna stjórnenda, en
hjónin Pétur Ármannsson og Brog-
an Davi son tóku við í byrjun árs.
Saman hafa þau starfað um árabil
sem sviðslistarhópurinn Dance For
Me og hafa ferðast um allan heim
með sýningar sínar. n
Dansað um borgina
Reykjavik Dance
Festival hefst í
næstu viku.
Fyrsta stóra hátíð nýrra
listrænna stjórnenda.
Hægindastólar
frá Franco Ferri
46 Menning 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 13. nóvember 2021 LAUGARDAGUR