Fréttablaðið - 13.11.2021, Qupperneq 98
Smáatriðin
skipta
höfuð
máli í GK.
Tískudrottningin og áhrifa-
valdurinn Elísabet Gunnars-
dóttir segir Íslendinga vera
opnari í ár og þora að fara út
fyrir þægindarammann með
því að velja skæra liti í yfir-
höfnum fyrir veturinn.
svavamarin@frettabladid.is
„Það er mikið af litum í gangi í haust
og sterkari litir en við erum að sjá
á þessum árstíma. Íslendingar eru
vanir að kaupa svartar eða gráar
yfirhafnir en mér finnst fleiri þora
að færa sig yfir í skæra liti,“ segir
Elísabet.
Leikum okkur að litunum
„Skærappelsínugulur og grænn
eru vinsælustu litirnir í vetur.
Þessir tveir litir passa ótrúlega vel
við ljósan og dökkbrúnan, sem
eru einnig mjög heitir um þessar
mundir,“ að sögn Elísabetar.
„Það er hægt að leika sér með
litina með því að velja brúna eða
svarta kápu, og ef þú þorir að
kaupa þér græna eða appelsínugula
húfu, klút eða vettlinga við. Síðan
eru eldrauðar úlpur frá íslenskum
útivistarmerkjum í forgrunni og
detta síður úr tísku.“
Vöndum valið
Þegar kemur að vali á yfirhöfnum
mælir Elísabet með að hugsa um
notagildið og að f líkin sé nokkuð
tímalaus.
„Mér finnst smá munur á að kaupa
kápu eða úlpu þar sem það er mik-
ilvægt að kaupa góða og hlýja úlpu
þar sem það getur orðið ansi kalt á
skerinu.“
Að sögn Elísabetar er allur
aldur farinn að klæða sig í litríkari
fatnað, ekki bara yngri kynslóðin.
„Íslensku merkin eru líka að koma
með æpandi liti í úlpum, sem
dæmi, og er það er frekar nýtt og
gaman að sjá. Ég gæti trúað að það
gæti orðið trend.“ n
Elísbet Gunn
arsdóttir, tísku
drottning og
áhrifavaldur
Rauði liturinn
er áberandi í
vetur hjá 66°N.
Elísabet Gunnars
hvetur til litadýrðar
Þykk bólstruð vetrar
úlpa úr HM, bæði
falleg og praktísk.
Þetta er alvöru jóla-
popplag.
Fallega ljós
brún úlpa
úr H&M.
Grænar
kápur í ryk
frakkastíl
fást í Lindex.
KVIKMYNDIR
Birta
Leikstjórn: Bragi Þór Hinriksson
Handrit: Helga Arnardóttir
Aðalhlutverk: Kristín Erla
Pétursdóttir, Margrét Júlía
Reynisdóttir, Salka Sól Eyfeld,
Margrét Ákadóttir
Svava Marín Óskarsdóttir
Barna- og fjölskyldumyndin Birta
er með eindæmum falleg og hjart-
næm mynd sem öll börn landsins
og fjölskyldur þeirra ættu að sjá í
aðdraganda jóla.
Systurnar Birta og Kata búa með
einstæðri móður sinni í Bakka-
hverfinu í Breiðholti og myndin
lýsir ósköp hversdagslegum veru-
leika íslenskrar fjölskyldu.
Við kynnumst harðduglegri
móður stúlknanna sem vinnur
tvöfaldar vaktir sem hjúkrunar-
fræðingur á Landspítalanum til að
ná endum saman hver mánaðamót.
Samt á hún aldrei krónu aukalega og
á til dæmis hvorki fyrir íþróttaskóm
né æfingagjöldum Birtu.
Kvöld eitt hlerar Birta símtal sem
hrindir atburðarásinni af stað, en
þar segir mamma hennar vinkonu
sinni að hana vanti auka 100 þús-
und krónur til að geta haldið jól.
Símtalið sýnir einnig að gæta þarf
að því hvað er sagt í návist barna,
þar sem þau taka hluti oft mjög bók-
staflega.
Birta tekur enda ráðin í sínar
hendur og fer að leita ýmissa leiða
til þess að safna peningum til að
hjálpa mömmu sinni. Myndin er
þannig ágæt áminning til okkar og
barnanna okkar, sem lifum og hrær-
umst í neyslusamfélagi samtímans
um að það er ekki allt sjálfgefið og
oft þurfi allir að leggjast á eitt, í það
minnsta að sýna þakklæti.
Undirrituð fór á myndina með
fjölskyldunni og þegar gengið var
út úr salnum voru allir, foreldrarnir
og bæði börnin yfir sig hrifin.
Sú yngsta, fimm ára stelpa, var
meira að segja það hrifin að hún
bað um að byrjað yrði á myndinni
upp á nýtt. Þá er mikið sagt þar sem
daman vill yfirleitt fara út í hléi.
Myndin gæti því ekki fengið betri
einkunn en þá sem dóttirin gefur.
Dæmið af níu ára syninum segir líka
sína sögu en hann fór að þylja yfir
systur sinni að vera þakklát fyrir
dótið hennar og nýja rúmið sem
foreldrar hennar gáfu henni, að það
væri síður en svo sjálfsagt. n
NIÐURSTAÐA: Hversdagsleg
en um leið kómísk og hugljúf
mynd fyrir alla fjölskylduna.
Leikararnir frábærir og einlægir,
sér í lagi stúlkurnar tvær, sem
leika systurnar, og skila boðskap
myndarinnar einstaklega vel til
áhorfenda.
Birta gefur
foreldrum von í
neyslusamfélagi
Birta hefur slegið í gegn undanfarið.
odduraevar@frettabladid.is
„Yfirleitt má maður aldrei dæma lag
af demóinu þar sem lagið er ekki
fullbúið, en þegar ég heyrði demóið
fyrir þetta lag þá var það eitthvað
sem heillaði mig og ég ákvað bara
að slá til,“ segir tónlistarkonan Rakel
Pálsdóttir sem gefur á mánudaginn
frá sér nýtt jólalag. Lagið heitir Jóla-
veröld vaknar og er eftir Gunnar
Inga Guðmundsson og Nínu Richter.
Rakel segir að Covid-tíminn hafi
haft í för með sér færri verkefni rétt
eins og hjá öllu tónlistarfólki. „Og
ekkert búið að vera neitt mikið að
gera og mig hefur lengi langað til
að gera meira og ég ákvað bara að
senda á Gunnar línu,“ útskýrir Rakel
sem hitti Gunnar fyrst í brúðkaupi.
„Svo fæddist lagið í sinni endan-
legu mynd í stúdíóinu þegar við
byrjuðum að taka það upp,“ segir
Rakel, sem ber samstarfinu við
Fólk mun fá lagið á jólaheilann
Rakel hyggst syngja sig inn í hjörtu landsmanna með Jólaveröld vaknar.
Gunnar og Nínu gríðarlega vel sög-
una. „Og hann hafði sínar skoðanir
sem hann bar alltaf undir mig og ég
er alltaf opin fyrir öllu, enda er ég
alæta á tónlist og finnst ekki neitt
eitthvað ljótt eða leiðinlegt.“
Rakel segist sjálf vera mikið jóla-
barn þrátt fyrir að hafa aldrei gefið
út jólalag áður. „Þetta er alvöru jóla-
popp,“ segir hún. Fólk muni klárlega
koma til með að fá lagið á heilann
núna þegar jólavertíðin hefst loks-
ins fyrir alvöru. n
Grænir litir eru
áberandi hjá
H&M í vetur.
Kamelbrún
kápa er kjörin
haustflík hjá
Andreu.
54 Lífið 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 13. nóvember 2021 LAUGARDAGUR