Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 100

Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is odduraevar@frettabladid.is „Fréttirnar sem standa upp úr eru að fjölmiðlanefnd stofnaði á dög- unum starfsmannafélag. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir öfluga stofnun eins og fjölmiðlanefnd að vera með gott starfsmannafélag. Gott starfsmannafélag er forsenda þess að mannauður blómstri og ég ber miklar væntingar til þessa félags enda eru mannauðsmálin mér mjög kær,“ segir Hjörvar Haf- liðason, þáttastjórnandi eins vin- sælasta hlaðvarps landsins, Dr. Football. Eins og frægt er orðið var Hjörvar á dögunum rukkaður um hálfa milljón króna af nefndinni vegna meintra brota á reglum um skráningarskyldu fjölmiðla. „Svo er auðvitað sérstaklega ánægjulegt að Ameríkuf lug hafi hafist aftur. Það er langt síðan maður hefur komist í land tæki- færanna. Og þetta er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga og sérstak- lega Icelandair. Svo er ánægjulegt að á sama tíma og þetta opnaðist var tilkynnt um þetta valdeflandi samstarf við f lug- félagið JetBlue sem mun renna enn frekari stoðum undir þetta öfluga félag. Það styrkir ekki eingöngu stöðu Icelandair heldur líka okkar neytenda.“ n Mannauðsmálin doktornum mikilvæg Doktorinn Hjörvar Hafliðason fer yfir fréttir vikunnar. Ég hef miklar væntingar til þessa félags. n Frétt vikunnar Hjörvar Hafliðason odduraevar@frettabladid.is „Ég tók ekkert sérstaklega vel í þetta,“ segir rithöfundurinn Óskar Guðmundsson um þá stund þegar honum var óvænt boðið hlutverk pyntarans Jürgens í Leynilöggu. Þrátt fyrir hikið gáfust leik- stjórinn Hannes Þór Halldórs- son og félagar ekki upp, enda var Óskar talinn smellpassa í hlutverk pyntarans sem gerir aðalpersónum myndarinnar lífið leitt. „Ég var talinn hafa útlitið í þýskan pyntingameistara, svo var ég í námi í Þýskalandi og átti því að geta neglt hreiminn,“ segir Óskar hlæjandi. Hann segir efasemdirnar ekki hafa horfið á tökudag. „Ég var viss um að þau myndu eyða þessu því mér fannst þetta ganga mjög illa hjá mér,“ útskýrir Óskar. Það gerðist ekki, en trú Hannesar og félaga á þýskum hreim Óskars gufaði hins vegar upp. „Ég var á endanum talsettur á snilldarlegan hátt, sem er drep- fyndið vegna þess að ég var bara fenginn í hlutverkið út af þýska hreimnum,“ segir Óskar, sem segist alsæll með hlutverkið, þrátt fyrir að vera öllu vanari því að skrifa bækur en að leika í myndum. „Ég sé alls ekki eftir því að hafa tekið þátt, ég var sjálfur að dunda mér í kvikmyndagerð á mínum yngri árum og þetta var algjörlega frábær lífsreynsla.“ n Hafði efasemdir um að verða pyntari Óskar var á endanum talsettur. Uppistandshópurinn Fyndn- ustu mínar mætir aftur í Þjóð- leikhúskjallarann eftir langt hlé. Salka Gullbrá Þórarins- dóttir lofar stórum byssum í persónulegu náttfatapartíi. odduraevar@frettabladid.is „Við erum búnar að hlaða í mjög stórar byssur,“ segir Salka. Hún viðurkennir að það sé orðið ansi langt síðan hópurinn hafi komið saman síðast á sýningu, eða fyrir kófið mikla. „Þannig að við erum búnar að vera á náttfötunum að semja brandara í eitt og hálft ár og ekki komist í nein önnur föt. Við ætlum bara að halda okkur við það og vera bara á inni- skónum,“ útskýrir Salka. Nýlega var Þjóðleikhúskjallaran- um breytt og nú sitja gestir við borð umhverfis svið í miðjunni. Salka segir að það verði vel nýtt í nýju sýningunni. „Að mæta á uppistand hjá okkur verður svolítið eins og að vera í náttfatapartíi með fyndnustu konum sem þú þekkir. Það er trúnó- stemning og hlátur og þér líður vel,“ segir hún og leggur áherslu á að á þessum síðustu og verstu sé ekki síst þörf á því: „Núna er dimmasti tími ársins að fara í hönd. Við þurfum aðeins ljós og grín og því fylgir D-vítamín búst að mæta hjá okkur. Það er nefnilega aldrei að vita hvort að við verðum jafnvel ekki bara með svona D-víta- mín-lampa til að bæta serótónín framleiðsluna,“ segir Salka. Kynferðismenn og múffur Fyndnustu mínar hafa hingað til verið þekktar fyrir einstakt grín sitt um veruleika ungra kvenna á Íslandi. Salka veltir fyrir sér hver veruleiki hópsins sé í dag nú þegar svo langt er liðið síðan seinast. „Það hefur nefnilega ýmislegt breyst. Ég er til dæmis búin að eignast barn og er allt í einu orðin mamman í hópnum. Þannig að ég grínast mikið með mismunandi uppeldisaðferðir,“ segir Salka. Aðrar í hópnum búi við annan veruleika. „Aðrar okkar eru einhleypar og að upplifa stefnumótaöppin. Rebekka er til dæmis með hugmynd að nýju stefnumótaappi, sem við gefum ekki meira upp um hér,“ segir Salka hlæjandi. „Þetta er einmitt um okkar veru- leika en ég veit það ekki, getum við enn þá kallað okkur ungar konur? Við erum að detta í 28, 29 og núna er ég bara allt í einu: „Guð, get ég einu sinni sagt það?“ spyr Salka sig í ein- lægri tilvistarkreppu. „En við grínumst með ýmislegt, allt frá uppeldisaðferðum, múffum í kynlífsbúðum og til kynferðis- manna. Það er hugtak sem Hekla bjó til og það er mjög augljóst í uppistandinu hvers vegna þeir eru kallaðir þetta og þá grínumst við auðvitað með ævintýri einhleypra í Reykjavík,“ segir Salka. Hún segir hópinn óþarf lega einlægan um eigin ákvarðanir. „Í grunninn erum við alltaf að gera grín að okkur og þeim ákvörðunum sem við tökum sem eru hreinlega misgáfulegar. Við höldum einhvern veginn að við séum alltaf að eldast og þroskast, en af og til finnst mér það ekki einu sinni vera raunin.“ n Búnar að hlaða byssurnar lengi fyrir náttfatapartíið Lóa Björk, Salka Gullbrá, Hekla Elísabet og Rebecca Lord bjóða í grín og trúnó. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. www.DORMA.is JÓLIN ERU Í DORMA Frábært úrval og gott verð Boltze Cracky hnotubrjótur, hvítur. 2 gerðir. H40 cm. 4.990 kr./stk. Boltze Crispin hnotubrjótur. 2 gerðir. H25 cm. 2.990 kr./stk. Boltze Georges jólaálfur. 2 gerðir, H16 cm. 2.490 kr./stk. Boltze Zotty jólaálfur hvítur og grár 2 gerðir. 1.290 kr./stk. Boltze Nelle hreindýr 2 gerðir 890 kr./stk. Boltze Socky jólasokkur. 3 gerðir. H26 cm. 1.190 kr./stk. 56 Lífið 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.