Fréttablaðið - 13.11.2021, Síða 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
odduraevar@frettabladid.is
„Fréttirnar sem standa upp úr eru
að fjölmiðlanefnd stofnaði á dög-
unum starfsmannafélag. Ég held að
það sé mjög mikilvægt fyrir öfluga
stofnun eins og fjölmiðlanefnd að
vera með gott starfsmannafélag.
Gott starfsmannafélag er forsenda
þess að mannauður blómstri og
ég ber miklar væntingar til þessa
félags enda eru mannauðsmálin
mér mjög kær,“ segir Hjörvar Haf-
liðason, þáttastjórnandi eins vin-
sælasta hlaðvarps landsins, Dr.
Football. Eins og frægt er orðið var
Hjörvar á dögunum rukkaður um
hálfa milljón króna af nefndinni
vegna meintra brota á reglum um
skráningarskyldu fjölmiðla.
„Svo er auðvitað sérstaklega
ánægjulegt að Ameríkuf lug hafi
hafist aftur. Það er langt síðan
maður hefur komist í land tæki-
færanna. Og þetta er mikilvægt
fyrir okkur Íslendinga og sérstak-
lega Icelandair.
Svo er ánægjulegt að á sama tíma
og þetta opnaðist var tilkynnt um
þetta valdeflandi samstarf við f lug-
félagið JetBlue sem mun renna enn
frekari stoðum undir þetta öfluga
félag. Það styrkir ekki eingöngu
stöðu Icelandair heldur líka okkar
neytenda.“ n
Mannauðsmálin doktornum mikilvæg
Doktorinn Hjörvar Hafliðason fer yfir fréttir vikunnar.
Ég hef
miklar
væntingar
til þessa
félags.
n Frétt vikunnar
Hjörvar Hafliðason
odduraevar@frettabladid.is
„Ég tók ekkert sérstaklega vel í
þetta,“ segir rithöfundurinn Óskar
Guðmundsson um þá stund þegar
honum var óvænt boðið hlutverk
pyntarans Jürgens í Leynilöggu.
Þrátt fyrir hikið gáfust leik-
stjórinn Hannes Þór Halldórs-
son og félagar ekki upp, enda var
Óskar talinn smellpassa í hlutverk
pyntarans sem gerir aðalpersónum
myndarinnar lífið leitt.
„Ég var talinn hafa útlitið í þýskan
pyntingameistara, svo var ég í námi
í Þýskalandi og átti því að geta neglt
hreiminn,“ segir Óskar hlæjandi.
Hann segir efasemdirnar ekki hafa
horfið á tökudag.
„Ég var viss um að þau myndu
eyða þessu því mér fannst þetta
ganga mjög illa hjá mér,“ útskýrir
Óskar. Það gerðist ekki, en trú
Hannesar og félaga á þýskum hreim
Óskars gufaði hins vegar upp.
„Ég var á endanum talsettur á
snilldarlegan hátt, sem er drep-
fyndið vegna þess að ég var bara
fenginn í hlutverkið út af þýska
hreimnum,“ segir Óskar, sem segist
alsæll með hlutverkið, þrátt fyrir að
vera öllu vanari því að skrifa bækur
en að leika í myndum.
„Ég sé alls ekki eftir því að hafa
tekið þátt, ég var sjálfur að dunda
mér í kvikmyndagerð á mínum
yngri árum og þetta var algjörlega
frábær lífsreynsla.“ n
Hafði efasemdir um að verða pyntari
Óskar var á endanum talsettur.
Uppistandshópurinn Fyndn-
ustu mínar mætir aftur í Þjóð-
leikhúskjallarann eftir langt
hlé. Salka Gullbrá Þórarins-
dóttir lofar stórum byssum í
persónulegu náttfatapartíi.
odduraevar@frettabladid.is
„Við erum búnar að hlaða í mjög
stórar byssur,“ segir Salka. Hún
viðurkennir að það sé orðið ansi
langt síðan hópurinn hafi komið
saman síðast á sýningu, eða fyrir
kófið mikla.
„Þannig að við erum búnar að vera
á náttfötunum að semja brandara í
eitt og hálft ár og ekki komist í nein
önnur föt. Við ætlum bara að halda
okkur við það og vera bara á inni-
skónum,“ útskýrir Salka.
Nýlega var Þjóðleikhúskjallaran-
um breytt og nú sitja gestir við borð
umhverfis svið í miðjunni. Salka
segir að það verði vel nýtt í nýju
sýningunni. „Að mæta á uppistand
hjá okkur verður svolítið eins og að
vera í náttfatapartíi með fyndnustu
konum sem þú þekkir. Það er trúnó-
stemning og hlátur og þér líður vel,“
segir hún og leggur áherslu á að á
þessum síðustu og verstu sé ekki
síst þörf á því:
„Núna er dimmasti tími ársins að
fara í hönd. Við þurfum aðeins ljós
og grín og því fylgir D-vítamín búst
að mæta hjá okkur. Það er nefnilega
aldrei að vita hvort að við verðum
jafnvel ekki bara með svona D-víta-
mín-lampa til að bæta serótónín
framleiðsluna,“ segir Salka.
Kynferðismenn og múffur
Fyndnustu mínar hafa hingað til
verið þekktar fyrir einstakt grín
sitt um veruleika ungra kvenna á
Íslandi. Salka veltir fyrir sér hver
veruleiki hópsins sé í dag nú þegar
svo langt er liðið síðan seinast.
„Það hefur nefnilega ýmislegt
breyst. Ég er til dæmis búin að
eignast barn og er allt í einu orðin
mamman í hópnum. Þannig að ég
grínast mikið með mismunandi
uppeldisaðferðir,“ segir Salka. Aðrar
í hópnum búi við annan veruleika.
„Aðrar okkar eru einhleypar og að
upplifa stefnumótaöppin. Rebekka
er til dæmis með hugmynd að nýju
stefnumótaappi, sem við gefum
ekki meira upp um hér,“ segir Salka
hlæjandi.
„Þetta er einmitt um okkar veru-
leika en ég veit það ekki, getum við
enn þá kallað okkur ungar konur?
Við erum að detta í 28, 29 og núna
er ég bara allt í einu: „Guð, get ég einu
sinni sagt það?“ spyr Salka sig í ein-
lægri tilvistarkreppu.
„En við grínumst með ýmislegt,
allt frá uppeldisaðferðum, múffum
í kynlífsbúðum og til kynferðis-
manna. Það er hugtak sem Hekla
bjó til og það er mjög augljóst í
uppistandinu hvers vegna þeir eru
kallaðir þetta og þá grínumst við
auðvitað með ævintýri einhleypra
í Reykjavík,“ segir Salka.
Hún segir hópinn óþarf lega
einlægan um eigin ákvarðanir. „Í
grunninn erum við alltaf að gera
grín að okkur og þeim ákvörðunum
sem við tökum sem eru hreinlega
misgáfulegar. Við höldum einhvern
veginn að við séum alltaf að eldast
og þroskast, en af og til finnst mér
það ekki einu sinni vera raunin.“ n
Búnar að hlaða byssurnar
lengi fyrir náttfatapartíið
Lóa Björk, Salka Gullbrá, Hekla Elísabet og Rebecca Lord bjóða í grín og trúnó.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
www.DORMA.is
JÓLIN ERU
Í DORMA
Frábært úrval
og gott verð
Boltze Cracky hnotubrjótur,
hvítur. 2 gerðir. H40 cm.
4.990 kr./stk.
Boltze Crispin hnotubrjótur.
2 gerðir. H25 cm.
2.990 kr./stk.
Boltze Georges jólaálfur. 2 gerðir,
H16 cm.
2.490 kr./stk.
Boltze Zotty jólaálfur hvítur og
grár 2 gerðir.
1.290 kr./stk.
Boltze Nelle hreindýr 2 gerðir
890 kr./stk.
Boltze Socky jólasokkur.
3 gerðir. H26 cm.
1.190 kr./stk.
56 Lífið 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ