Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 104
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Hauks Arnar
Birgissonar
n Bakþankar
Hrekkjavakan var ekki orðin
langlíf hér á landi þegar ráðhús
Reykjavíkur sá ástæðu til að senda
foreldrum hugleiðingar sínar um
búningaval barna þeirra. Voru þeir
hvattir til að velja ekki búninga
sem byggja á kynþætti, uppruna
eða menningu annarra, enda
kunna slíkir búningar að vera
óviðeigandi, að mati ráðhússins.
Ljóshærðir drengir mega því ekki
þykjast vera Lebron James og
rauðhærðar stúlkur geta ekki þóst
vera Pocahontas. Einhver kynni að
móðgast.
Ef við látum það liggja á milli
hluta að umrædd hátíð er bein
línis haldin í þeim tilgangi að
hrekkja aðra, þá er augljóst að
hvorki drengnum né stúlkunni
gengur nokkuð illt til. Þvert á móti
eru börnin að herma eftir hetjum
sínum og eru búningarnir eins
langt frá því að vera lítilsvirðandi
og hugsast getur. Börn í þykjustu
leik eru ekki að lítilsvirða nokkurn
mann og það ætti öllum að vera
ljóst. Og áður en einhver ætlar að
kommenta um að einungis sé óvið
eigandi að stæla hópa sem hafa
mátt þola kúgun, þá bendi ég á að
það þykir alveg jafn óviðeigandi að
klæðast japönskum geisjubúningi
eins og að setja upp indjánaskraut.
En til er fólk sem móðgast af
engu tilefni. Ef laust er einhver
þarna úti með svo einbeittan
móðgunarvilja að hann ærist við
að sjá arabískan dreng í lopa
peysu, indverska stúlku í appel
sínugulum 66°N pollabuxum,
mexíkóska konu í skautbúningi og
kínverskan mann með víkinga
hjálm. En má viðkomandi þá ekki
bara móðgast? Er það ekki bara
hluti af lífinu að þurfa að þola
móðgun? Er nokkur ástæða til að
banna það? n
Gott að banna
grikki?
ORKUNNI
JAFNAÐU
ÞIG HJÁ
Leggðu þitt að mörkum
í loftslagsmálum og byrjaðu
að kolefnisjafna á orkan.is.
20% AFSLÁTTUR
af öllum föndurvörum