Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Side 87

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Side 87
Skúli Guðmundsson frá Sœnautaseli Frá Skriðdælingum og Jökuldalsfólki Hér segir nokkuð frá foreldrum Ingibjargar Snjólfsdóttur frá Vaði og systkinum hennar Snjólfur hét maður, Rustikusson, fædd- ur um 1790 og voru foreldrar hans Rustikus Sigurðsson frá Geitdal og Guðlaug Snjólfsdóttir frá Stórulág í Horna- fírði, en þau voru búandi hjón í Eyrarteigi árið 1801. Kona Snjólfs var Ásdís Sigfúsdóttir (2396-8333) prests Guðmundssonar og seinni konu hans Guðríðar Hermannsdóttur (8309-11360). Séra Sigfús þjónaði íyrst Hjaltastað, en síðan Ási í Fellum frá árinu 1800. Hann átti 10 dætur með báðum kon- um sínum, og voru þær systur nafnkenndar fyrir góðmennsku og geðprýði, og urðu þær margar gamlar, segir í Ættum Austfirðinga.1 Ásdís var fædd 31. janúar árið 1800 á Hjaltastað, en á vori komanda það ár flutt- ist sr. Sigfús með ijölskyldu sína að Ási í Fellum hvar hann þjónaði til æviloka árið 1810. Hún var enn á barnsaldri er hún var tekin til fósturs af Eyjólfí Árnasyni (5817-1493) sem flutti að Hjarðarhaga á Jökuldal vorið 1806 frá Egilsseli í Fellum. Þar sem Eyjólfur var áður sóknarbarn sr. Sigfúsar meðan hann var í Fellum hafa þeir verið nákunnugir, og einhverra hluta vegna hafa mál orðið á þann veg að Ásdís fór til hans í fóstur að Hjarðarhaga, en þar er hún við sóknarmannatal á einmánuðum árið 1809 kölluð tökubarn. Vera má að það hafi verið vegna lasleika prests, en hann lést árið 1810, þá kominn nokkuð á sjötugsaldur (f. 1746). Ásdís fermdist vorið 1813 hjá Einari presti Björnssyni í Hofteigi með ágætum vitnisburði, og er athyglisvert að sr. Einar telur hana vera 12 ára gamla, en fleiri ferm- ingarbörn hans sýnast vera 12 ára, sem gæti bent til að hann hafi helst viljað ferma börn- in á þeim aldri. Ásdís er enn í Hjarðarhaga á sóknarmannatali sem tekið er í maí árið 1816, talin 17 ára sem sýnist vera ofmælt um eitt ár, en geta má þess að þá hafa orðið prestaskipti, því sr. Einar hafði brauðaskipti við sr. Sigfús Finnsson sem fram að þeim tíma var í Þingmúla. Árið 1818 er Ásdís orðin bústýra á Vaði í Skriðdal, og sama ár gekk hún að eiga Snjólf Rustikusson bónda þar sem þá var talinn 29 ára, en hún 19 ára (18). Var gifting þeirra gerð frá Vallaneskirkju, og svaramenn frjóðs. Sigf. Sigf. l.h. bls. 226-28. 85
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.