Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Side 107
Fcllamaöur á Fjarðaröldu
kostað 22 kr.“ Nú hófust hrindingar og
pústrar. Segir Nielsen að Gísli hafí reynt að
slá sig um leið og hann var að fara út úr
skúrnum en ekki hitt. Fór Nielsen þá inn í
kokkhús að skoða skemmdirnar á treyjunni
og fór síðan út til þess að sýna Gísla, en
hann „vildi ekki kannast við að hann hefði
rifið treyju Nielsens og var ósvífinn;
Nielsen rétti þá treyjuna fast að honum og
hratt honum 2^ eða 3^ dálítið stykki
tilbaka og færðust þeir smátt og smátt frá
plássinu og að pakkhúshorninu.“ Nielsen
minnir helst að Gísli rifi þá af sér skyrtuna
um leið og hann
hljóp í hann og fleygði honum til jarðar og
brotnaði þá um leið hægri fótleggur hans.
Eptir því sem Nielsen heldur tók Gísli um
mjöðmina á honum þegar hann felldi
hann, og eptir að hann var dottinn og fann
að fóturinn væri brotnaður, settist Nilsen
upp og þá um leið réðist Gísli aptur á hann
en Nielsen gat hrundið honum frá sér. —
Gísli tók þá í vinstri fótinn á honum og dró
hann dálítið stykki.“
Nielsen kallaði þá á hjálp en Gísli hvarf af
vettvangi.
Auðséð er að Gísli hefur tekið verslunar-
þjóninn glímutökum og í sömu svifum skellt
honum á sniðglímu eða brugðið honum
hælkrók. Það er eins og Nielsen átti sig ekki
almennilega á því sem gerðist. Hann veit
bara ekki fyrri til en hann liggur fótbrotinn
við pakkhúsgaflinn. Og fólk fór strax að
stumra yfír hinum slasaða manni. Það voru
semsé nokkrir áhorfendur að þessari rimmu
auk Sveins á Setbergi. Var það fólk Thostr-
ups: búðardrengur, verslunarþjónn, tvær
vinnukonur og Thostrup sjálfur.
Sýslumaður tók skýrslur af öllu þessu
fólki og er framburður þess í stórum drátt-
um samhljóða því sem þegar er komið
Gísli Sigfússon. Eigandi Ijósm. Hólmfríður Björns-
dóttir.
fram. Vinnukonumar, þær Guðlaug Björns-
dóttir 28 ára og Rebekka Eiríksdóttir 20 ára,
voru þó ekki mjög vissar í sinni sök, töldu
sig ekki hafa séð atburði greinilega enda
komið myrkur. Einna nákvæmust er skýrsla
búðardrengs sem heitir fullu nafni Páll
Sigfús Þórarinn Sigbjörnsson og er 17 ára.
Hann hafði fylgst með atburðunum frá upp-
hafí til enda. Þetta vitni sá „eptir því sem
það frekast gat séð Nielsen slá í Gísla [í
forstofunni], og þenna hripsa á móti, og
sagði Gísli við Nielsen „þér er óhætt að
berja dálítið meira“, og rétt á eptir hljóp
Gísli undir Nielsen og fíeygði honum til
jarðar.“ Þegar Nielsen hafði verið borinn
inn var þetta vitni „sent ofan á vertshúsið að
sækja Sigmund Vert, og stóð Gísli þar fyrir
utan og sagði við það „þarna kemur einn
bölvaður búðarslápurinn.“ Búðardrengnum
varð ekki vel við þetta og flýtti sér inn til
Sigmundar.
Heimafólk Thostrups hafði flykkst að
þegar hávaði og læti hófust en engum
105