Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Síða 157
Frumkristni á Austurlandi og Þórarinsstaðir
Njarðvík. Ljósm. SGÞ.
dóttir frá Njarðvík í Borgarfirði, systir
hennar var gift Geiti bónda í Krossavík,
sem fyrr var getið; önnur systir Jórunnar var
Gróa á Eyvindará á Héraði. Bræður Jór-
unnar voru Ketill þrymur í Njarðvík og Þor-
valdur faðir Droplaugarsona. Amma þess-
ara systkina frá Njarðvík var suðureyska
konan Arneiður, hún hefur líklega verið
kristin þegar hún var hertekin. Afkomendur
Arneiðar voru, ef trúa má hinum ýmsu
Austfirðingasögum, nokkuð upp á kant við
samfélagið og guldu þess.9
Geitir í Krossavík var drepinn í innan-
sveitarátökum í Vopnafirði sem héldu áfram
á milli Þorkels sonar hans og Bjarna Brodd-
Helgasonar á Hofi, annar sonur Geitis, Þiðr-
andi, var drepinn af norskum manni sem
Gunnar hét. Þiðrandi var þá í kurteisis-
heimsókn hjá Katli móðurbróður sínum í
Njarðvík. I þessum átökum féll Ketill.
Banamaður Þiðranda leitaði skjóls hjá
Helga Ásbjarnarsyni og Þórdísi konu hans,
dóttur Brodd-Helga.10 Synir Þovaldar
Þiðrandasonar, þeir Helgi og Grímur Drop-
laugarsynir áttu í deilum við Helga Ás-
bjarnarson, því lyktaði með falli Helga
Droplaugarsonar og síðar drápi Helga
Ásbjarnasonar og var Grímur flæmdur úr
landi. Áður hafði Droplaug móðir þeirra
verið hrakin úr landi.11
Sonur Halls af Síðu og Hallkötlu Þiðr-
andadóttur sem hét Þiðrandi var myrtur að
næturlagi og drápið kennt dísum.12 Þegar
þingheimur barðist á Alþingi eftir Njáls-
brennu gengu til að skilja fylkingar Hallur
af Síðu og Ljótur sonur hans; þá var Ljótur
valinn úr hópnum og drepinn.13 Ég fæ ekki
varist þeirri hugsun að þegar þetta er sett í
samhengi þá minni atburðarásin á heiftúð-
ugar trúarbragðadeilur.
Þær miklu rústir sem fundist hafa á Þór-
arinsstöðum benda til að þar hafi verið stór-
^íslensk fomrít I. bindi, Landnáma bls. 295-297, Reykjavík 1968.
^íslenskfornrit Xi bindi Gunnars þáttur Þiðrandabana bls. 196, Reykjavík 1950.
1 ^íslensk fornrit XI bindi, Droplaugarsona saga bls. 137, Reykjavík 1950.
1 -íslendinga sögur, Þiðranda þáttur og Þórhalls bls. 371-378. Reykjavík 1953.
1 -fslensk fornrit XII bindi, Brennu-Njáls saga bls. 408. Reykjavík 1971.
155