Heilsuvernd - 01.03.1952, Page 9
HEILSUVERND
5
Kaupmönnum er trúað fyrir innkaupum á erlendri og
innlendri matvöru, sem ætti að vera trúnaðarverk lækn-
anna. Einkunnarorð kaupmannsins er: Keyptu ódýra vöru,
og seldu hana með góðum arði. Afleiðingin er kaup á svik-
inni og óhollri fæðu, eitruðu, hvítu mjöli og hvítum sykri,
hýðislausum grjónum, gömlu, oft áragömlu, sviknu mjöli,
sem dæmi eru til að blandað hefir verið leir eða trjáberki.
Með neyzlu þessarar óhollu og dauðu fæðu eru skapaðir
óviðráðanlegir hrörnunarsjúkdómar, sem kosta flesta menn
heilsu og líf.
Fyrir nokkrum árum var svissneska lækninum Bircher-
Benner, einum vitrasta og lærðasta lækni heimsins, boðið
til London til þess að halda þar fyrirlestra fyrir lærðum
mönnum. En þessum lækni hafði þá um áratuga skeið tek-
izt að lækna sjúkdóma, sem annars voru taldir ólæknandi
og hin þaulreynda læknislist kunni engin ráð við. Hinn
ágæti vísindamaður, Sir Robert McCarrison, kynnti fyrir-
lesarann með þessum orðum:
„Vér lifum á tímum mikilla vísindalegra framfara á öll-
um sviðum læknavísindanna, og samt sem áður fjölgar
sjúkum mönnum stöðugt, og nýir sjúkdómar bætast við í
hópinn. Sjúkrahúsum er fjölgað og fundin ný lyf. Og menn
spyrja sjálfa sig, hvort engin ráð séu til þess að losna úr
þessu sjúkdómakviksyndi. Gestur vor, læknirinn Bircher-
Benner, ætlar að sýna oss þessa leið. Hann er einn hinna
örfáu lækna, sem hafa lagt heiminn undir sig með lær-
dómi sínum.“
Nú vitum vér, að McCarrison hafði með tilraunum sín-
um á mataræði og þýðingu þess fyrir heilsu dýra og manna
sýnt fram á, að sjúkdómar eru óþarfir, að unnt er að koma
í veg fyrir þá og að til eru mannflokkar, sem eru með öllu
lausir við þá (sbr. 9. rit NLFÍ, Mataræði og heilsufar).
Eg lít svo á, að lífið sé þroskaskeið, skóli, þar sem vér
eigum að stunda nám. Dæmisagan um talenturnar hjá
Mattheusi, 25. kap., 14—50, er einmitt meistaraleg sam-