Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 22
18
HEILSUVERND
hrært. vel saman. Tekið af eldinum og kælt, eggjarauðunum hrært
saman við, einni og einni í senn, og hrært vel í á milli. Hellt í vel smurt
mót og bakað í ofni í 3 stundarfjórðunga. Gott er að borða tómatsósu
með þcssum rétti. 1 stað hvitra bauna má nota grænar baunir, linsur
og fleiri tegundir.
Baunabuff. 1 bolli grænar baunir (þurrkaðar); 2 meðalstórar gul-
rætur; 1 lítil gulrófa; 1—2 hráar, rifnar kartöflur (með hýði); 1 egg;
1 peli mjólk; 4 matsk. heilhveiti; 4 matsk. haframjöl; 2 laukar; feiti.
Baunirnar eru malaðar þurrar, rótarávextirnir rifnir saman við,
heilhveiti og haframjöli blandað í, vætt í með mjólkinni og egginu og
dcigið hrært saman. Sett með skeið á pönnu, flatt út og brúnað ijós-
brúnt í feiti. Buffið síðan sett i gatasigti yfir gufu og soðið i 2—3 mín.
1 staðinn fyrir að mala baunirnar þurrar, má sjóða þær og hakka.
Laukurinn er skorinn í þunnar sneiðar, soðinn I vatni í 3 mínútur,
settur á buffið og feitinni hellt yfir.
Með þessu er gott að borða allskonar grænmeti.
Þurrkaö rauökál. 100 gr. þurrkað rauðkál; % 1. vatn; 25 gr. smjör-
líki; % epli; púðursykur; sitrónusafi; saft.
Kálið er látið liggja í vatninu yfir nóttina og á að drekka það allt
í sig; síðan sett í pott, ásamt smjörlíkinu og eplinu skornu í sneiðar,
og soðið í 2—3 stundarfjórðunga við vægan hita. Sítrónusafa, sykri og
saft bætt í eftir bragði.
Eplakaka meö rúgbrauöi. 250 gr. rifið rúgbrauð; 25 gr. smjörlíki; 25
gr. púðursykur; % kg. epli (eða 150 gr. þurrkuð epli); 2% dl. rjómi;
1 matsk. gott ávaxtamauk.
Smjörið er brætt á pönnu, sykri og brauði blandað saman við og
hrært i, unz af því kemur bökunarlykt. Eplin eru þvegin, en ekki
flysjuð, fræhúsin tekin úr, og eplin skorin í bita, soðin í mauk og
púðursykri bætt í eftir smekk.
Brauðblanda og epli sett i lögum í skál, þrýst vel saman, og gott er
að láta ofurlítið af ávaxtamauki á milli laga. Þá er skálin skreytt með
þeyttum rjóma og brauðblöndu stráð yfir.
FJÖREFNA- OG KALKLYF REYNAST VERR
EN NÁTTÚRLEG FÆÐA.
Amerískur vísindamaður, dr. R. Lee, skýrir svo frá, að 500 þunguð-
um konum hafi. i tilraunaskyni verið gefin kalklyf og tilbúin fjör-
efni. Þær sýktust allar % nýrum vegna kölkunar. Annar hópur þung-
aðra kvenna fékk engin lyf, en þær nærðust á náttúrlegri fæðu, sem
hafði inni að halda gnægðir þessara efna. Engin þeirra hafði neitt
af nýrnasjúkdómum að segja. (Rude Heáltli).