Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 10
6
HEILSUVERND
líking á mannlífinu. Sálin er svo sem að láni samtengd við
líkamann.
Fullkomin, náttúrleg, lifandi fæða verður ekki bætt með
neinni efnafræðilegri þekkingu. Breyting sú, sem gerð hefir
verið með því að svipta hveitikornið hýði sínu og lífefnum,
og sykurreyrinn eða sykurrófuna öllum grófefnum, er ó-
bótaverk meira en drepsóttir eða jafnvel styrjaldir. Með
eldhitun fæðunnar er einnig unnið skemmdarstarf, sem ekki
á sinn líka. Við alla eldhitun eða suðu skemmast eða eyði-
leggjast fjörefnin og önnur lífefni fæðunnar, fyrsta A- og
C-fjörefnin. B-f jörefnin eru þolnari, en eyðast þó. Við suðu
í vatni hverfa einnig steinefnin út í soðið, fyrst og fremst
fosfór, joð og brennisteinssambönd, og síðan fleiri. Suðan
veldur einnig að öðru leyti hættulegri röskun á efnasam-
setningu fæðunnar. Þannig verður breyting á sameinda-
byggingu eggjahvítuefnanna, svo að þau henta verr en ella
sem byggingarefni fyrir líkamann.
Við suðu verða einnig viðsjálar eða óbætanlegar breyting-
ar á öllum grófefnum, sem náttúrleg' fæða inniheldur í
ríkum mæli. En grófefnin örva tæmingu þarmanna. Suðan
opnar þannig leiðina fyrir tregar hægðir og rotnun fæðu-
leifanna í þörmum. Af þessu skapast sjúklegt ástand, sem
kallað er sjálfseitrun (autointoxication) og er fólgin í því,
að rotnunarefnin úr þörmunum fara inn i blóðið og eitra
það og um leið allan líkamann. Raunverulega verða menn
aldrei veikir af öðru en því, að blóðið verður óhreint og
flytur hverri frumu eiturmengaða næringu. Það er líkt og
ef heilli þjóð væri byrluð ólyfjan. Frumurnar eru þegnarnir,
líkaminn þjóðarheildin.
HVEITIKORN
er nú komiS til landsins og verður væntanlega til eftirleiðis. I korn-
myllu NLFÍ verður kornið malað og mjölið selt í verzluninni Sval-
barða, Framnesvegi 44, sem afgreiðir einnig pantanir út á land.
Þá hefir Náttúrulækningafélag Akureyrar fengið korn til mölunar.
Bráðlega er von á rúgkorni. Handsnúnar kornkvarnir fást í verzl-
uninni Liverpool.