Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 24

Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 24
20 HEILSUVERND aðeins fjórum tegundum: blóðbergi, vallhumli, rjúpnalaufi og ljónslöpp. f „Nýjum leiðum 11“ og Heilsuvernd hafði ver- ið bent á gildi þessara nytjajurta og að af þeim mætti búa til hinn bezta og heilnæmasta drykk. En hinsvegar vissi ég ekki, í hvaða hlutföllum átti að blanda þeim saman. Fyrst reyndi ég að hafa jafnþyngd af hverri tegund. En þá varð vallhumallinn of áberandi, enda er hann mjög bragðsterkur. Af honum notaði ég aðeins fræhnappinn, en af rjúpnalaufinu og ljónslöppinni blöðin ein. Og síðan hefi ég smámsaman bætt í þessa blöndu beitilyngi, smára, bald- ursbrá og jafnvel fleiri jurtum, sem ég hefi látið fljóta með. Jurtir þessar sker ég upp með vasahníf, nema rjúpna- laufið, á það nota ég helzt pennahníf. Af ofangreindum jurtum er Ijónslöppin einna fyrst til að spretta á vorin, og hún fölnar með þeim síðustu. Blóðberginu fer ég að safna næsta á eftir henni. Það tek ég helzt, rétt áður en fræ- hnappurinn springur út, og læt sjálfa hrísluna ósnerta. Þá kemur smárinn og rjúpnalaufið. Þau grös þykja mér að- gengilegust, áður en þau fara nokkuð að blómstra, og tek ég þau eins nærri rótinni og hægt er, án þess að óhreinindi þurfi að fylgja með. Beitilyngið sker ég upp með öllu og ekki fyrr en það er farið að blómstra, enda illt að sjá það áður, Það blómstrar ekki fyrr en síðast í ágúst. Af bald- ursbránni nota ég einungis fræhnappinn, tek jafnvel stund- um hvítu blöðin af, en það er alltof tafsamt. Eg er komin á þá skoðun, að baldursbráin sé mjög heil- næm jurt, bæði drykkir af henni og eins í bakstra við út- vortis bólgum og sárum, og ég býst við, að hún jafngildi kamillujurtinni. Ekki hefi ég heldur orðið þess vör, að hún skemmi bragðið, þótt henni sé blandað í aðrar drykkjar- jurtir, fremur hið gagnstæða. Eg tíni hverja tegund út af fyrir sig og aðeins þegar vel er þurrt á grasi. Þegar heim kemur, hreinsa ég jurtirnar sem allra fyrst og mjög vandlega og tíni úr þeim allt rusl, set þær í gisna léreftspoka og síðan til þurrkunar, aðallega á snúrum, annaðhvort í hjalli eða undir beru lofti. En þá

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.