Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 11
HEILSUVERND
Páll V. G. Kolka:
Læknir
og
læknisfræðingur.
Grein þessi er tekin úr Morgun-
blaðinu 25. nóv. 1951 með góöfús-
legu leyfi höfundar. Greinin er all-
löng, og birtist hér aöeins fyrsti
kafli hennar.
Gagnrýni Erwins Liek. Á árunum milli heimsstyrjaldanna
var sá maður uppi í Danzig í Austur-Prússlandi, er Erwin
Liek hét. Hann var þekktur skurðlæknir, en jafnframt
snjall rithöfundur, sem mikill styrr stóð um í þýzkum
læknatímaritum, enda gagnrýndi hann í bókum sínum mjög
harðlega það, er honum þótti miður fara í heilbrigðismál-
um þjóðar sinnar.
I bók sinni um sjúkratryggingarnar fletti hann ofan af
þeirri óráðvendni, sem tryggingakerfið þýzka hafði alið
upp í læknum og sjúklingum, og dró einkum fram hinar
sálfræðilegu orsakir þeirrar öfugþróunar, en jafnframt urðu
skriffinnarnir, sem stjórnuðu tryggingunum, fyrir hinum
beitta penna hans.
Ennþá meiri úlfaþytur varð þó út af bók hans „Arzt und
Mediziner“, eða „Læknir og læknisfræðingur11. Þar réðst
hann mjög óvægilega á háskólana þýzku vegna fyrirkomu-
lagsins á læknanáminu þar, og þótti ýmsum frægum og
mikilsmetnum prófessorum þar mjög að sér sneitt. Mér
hefir orðið bók þessi minnisstæð, þótt liðin séu nú um
tuttugu ár, síðan ég las hana, en efni hennar var eitthvað
á þessa leið: