Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 21
HEILSUVERND
Dagbjört Jónsdóttir:
Húsmæðraþáttur.
Nú er sá tími ársins, þegar erfiðast er fyrir þá, sem lifa á
jurtafæðu, að afla sér hennar. Nýtt grænmeti er vart fá-
anlegt, og grænmeti geymt frá síðasta hausti hefir tapað
miklu af verðmætustu efnum sínum og er þar að auki hvorki
eins lystugt né ljúffengt, eins og þegar það var nýtt.
Góð húsmóðir lætur þó ekki hugfallast, en reynir að hag-
nýta á sem beztan hátt allt það, sem fyrir hendi er á hverj-
um tíma. Nú fást t. d. nýir ávextir, en með neyzlu þeirra má
bæta sér upp m. a. þau C-fjörefni, sem grænmetið hefir
misst við geymsluna. Ýmsar grænmetistegundir fást nú
þurrkaðar, og má með þeim auka á ýmsan hátt fjölbreytni
í matargerðinni.
Súrmjólk er holl og auðmeltari en nýmjólk, sérstaklega
fyrir þá, sem hafa veikan maga. Hún er góð til drykkjar, en
einnig má búa til úr henni marga góða rétti. Fer einn þeirra
hér á eftir.
Köld súrmjólkursúpa. 1% 1. súrmjólk; 2—3 matsk. púðursykur eða
hunang; % vanillustöng; 8—10 möndlur; 1—2 dl. rjómi.
Möndlurnar eru afhýddar og brytjaðar smátt ásamt vanillustöng-
inni. Þessu blandað saman við súrmjólkina, og sykrinum eða hunang-
inu bætt út í. Loks er þeyttum rjómanum blandað saman við. Gott er
að borða heilhveititvíbökur með súpunni.
Til eru ýmsar baunategundir, eins og kunnugt er. Þær eru
einn aðaleggjahvítugjafi þeirra, sem jurtafæðu neyta. Eru
hér tveir réttir búnir til úr baunum.
Hvítur baunabúöingur. 250 gr. hvítar baunir; 250 gr. hráar eða
soðnar kartöflur; 75 gr. smjörlíki; 3 egg; múskat.
Baunirnar eru lagðar i bleyti yfir nóttina, soðnar og hakkaðar ásamt
kartöflunum. Látið í pott og ylað. Smjörliki og mjólk bætt út í og öllu
ferðum, ásamt mjólkurmat og jafnvel dálitlu af kjötmat, mundu
hrörnunarsjúkdómar og vanheilsa verða úr sögunni að mestu leyti.
(Ny tid og vi).