Heilsuvernd - 01.03.1952, Side 33
HEILSUVERND
29
TIL ÁSKRIFENDA.
Á síðasta ári hefir prentunarkostnaður og allur útgáfukostnaður
stórhækkað, m. a. vegna margfaldrar verðaukningar á pappír, enda
hefir verð á blöðum og bókum hækkað i samræmi við það. Til þess að
vega upp á móti þessum auknu útgjöldum, þyrfti að hækka áskriftar-
verð Heilsuverndar verulega (um 50%). Að vísu væri hægt að draga
dálítið úr prentunarkostnaði með því að velja ódýrari og lélegri papp-
ír, sleppa öllum myndum, nota eingöngu smáletur og minnka þannig
ritið, án þess að lesmál ódrýgðist. En ritið á nú vinsældir sínar m. a,
hinum vandaða frágangi að þakka, og því er óheppilegt að skera við
nögl sér í því efni og gæti heldur ekki ráðið úrslitum um verð ritsins.
Einfaldasta og öruggasta ráðið til að tryggja framtíð Heilsuverndar
og fjárhagsafkomu er að áskrifendum fjölgi. Og Þeir, sem þar geta
mestu áorkað, eru áskrifendur sjálfir og aðrir lesendur. Margir hafa
unnið duglega að söfnun áskrifenda, en beztur verður árangurinn, ef
allir leggja hönd á plóginn.
I trausti þess, að lesendur bregðist vel við þessum tilmælum, hefir
verið ákveðið að hækka áskriftarverðið aðeins um 5 lcrónur, upp í kr.
25. Á móti bjóðast hlunnindi, sem skýrt er nánar frá hér á eftir. •—
Leggjumst öll á eitt og tryggjum framtíð þessa rits, og verum þess
minnug að
HEILSUVERND ER BETRI EN LÆKNING.
VERÐLAUN FYRIR SÖFNUN ÁSKRIFENDA.
Fyrir að útvega 2 — tvo— nýja kaupendur að Heilsuvernd
fá menn að launum eftirtaldar bækur eftir vali: Heilsan sigr-
ar, Menningarplágan mikla, Nýjar leiðir, Sjúkum sagt til
vegar, Úr viðjum sjúkdómanna eða Mataræði og heilsufar.
Fyrir útvegun 5 — fimm — nýrra áskrifenda geta menn
valið um bókina Lifandi fæðu eða fría áskrift að Heilsuvernd
í eitt ár. — Áskilið er, að áskriftargjöld fylgi pöntun.
Þeir sem þess óska, geta fengið send ókeypis eldri eintök
af ritinu, ef þeir vilja útbýta því í útbreiðsluskyni. Ennfrem-
ur verða hefti send ókeypis til manna hvar sem er á landinu
eftir tilvísun áskrifenda. Kynnið yður einnig eftirfarandi
kaupbætur til handa nýjum áskrifendum.
NÝJIR ÁSKRIFENDUR
fá í kaupbæti einn af eftirfarandi árgöngum Heilsuverndar,
meðan upplag endist: 1947-8 og 51, enda fylgi greiðsla pöntun.
J