Heilsuvernd - 01.04.1953, Qupperneq 9

Heilsuvernd - 01.04.1953, Qupperneq 9
HEILSUVERND 5 hafi stórhrakað á síðustu áratugum. Þetta er ekki annað en það, sem núlifandi, eftirtektarsamir menn hafa borið vitni um hér á Islandi. Fyrir 60 árum var sykursýkin óþekkt hér, botnlangabólga fágæt, svo og tannveiki fyrir 100 árum, sem sjá má á því, að þar sem kirkjugarðar hafa blásið Upp, þar hafa flestar höfuðkúpur verið með heil- um tönnum. Þannig tók Vilhjálmur Stefánsson um 50 höf- uðkúpur úr gömlum kirkjugarði, og var þar varla skemmda tönn að finna. Hve margir skyldu grafnir nú með allar tennur heilar? Um heilsufar manna hefir Alexis Carrel komizt svo að orði, í nóbelsverðlaunábók sinni, Man the Unknown: „Eins og öllum má vera ljóst, er um tvennskonar heilsu að ræða, náttúrlega heilsu og gerviheilsu. Vísindaleg lækn- isfræði hefir gefið mönnum gervi'heilsu og vernd gegn all- mörgum næmum sjúkdómum, og má kalla það góðra gjalda vert. En gáfaðir og kjarkmiklir menn láta sér ekki lynda heilsu, sem er aðeins sjúkdómaleysi, eða sjúkdómar á lágu stigi, og er komin undir sérstöku dekri í mataræði, sífelld- um inndælingum inn í hold manna, tilbúnum fjörefnum og stöðugum læknisrannsóknum og eftirliti. Dugandi menn gera kröfu um náttúrlega heilbrigði og algert ónæmi fyrir afsýkjandi kvillum og 'hrörnunarkvillum. Þessir menn vilja vera undanþegnir sjúklegum kvíða um heilsu sína. Læknisfræðin verður þá fyrst makleg óskoraðs lofs, er henni tekst að finna ráð til að gera líkama manna ónæmán fyrir sjúkdómum, þreytu og nagandi kvíða um heilsuna. Vér verðum að endurskapa manninn, andlega og líkamlega, til þess að losna við hverskonar kvilla, en gefa honum í þess stað náttúrlegt öryggi, sem veitir honum lífsgleði og andlegt frelsi, en það eru skilyrðin fyrir fullkominni lífs- sælu manna.“ Fullkomin heilbrigði verður ekki fengin með byggingu fleiri og stærri sjúkráhúsa, og ekki með lyfjaáti, heldur með því einu að gera mönnum kleift að lifa heilbrigðu lífi og varðveita náttúrlega heilbrigði, og til þess er sterkasta

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.