Heilsuvernd - 01.04.1953, Blaðsíða 10

Heilsuvernd - 01.04.1953, Blaðsíða 10
6 HEILSUVERND vopnið og meginþátturinn náttúrleg og lifandi fæða. En mikið af þeim matvörum, sem fluttar eru landsmönnum, eru með þeim annmarka að skapa sjúkdóma, frekar en heilþrigði. Svo er um hvítt hveiti, hvítan sykur og hvít hrís- grjón, ennfremur eitraðar nautnavörur, svo sem áfengi, töbak, kaffi, sælgætisvörur og kólavörur. Sala á þessum vörum er bein og óbein sjúkdómaræktun. Líkt má segja um gervifæðutegundir og niðursuðuvörur. Sannarlega lýsir það mikilli vanþekkingu, að ekki skuli vera meira eftirlit haft með hollustusemi þeirrar matvöru, sem börnum lands vors er fengin til neyzlu. T. d. er það á flestra vitorði, að gamalt mjöl er miklu næringarminna en nýtt mjöl, auk þess sem hættulegum eiturefnum er blandað í hið innflutta mjöl. Á 'hvítu eiturbleiktu hveiti einu saman — auk vatns — getur enginn maður lifað lengur en 10—12 daga,'ella er 'honum bani búinn. Sama er um hvíta sykurinn að segja, og er hann þó enn hættulegri. Eigi að síður er hann fyrsta nær- ing, sem nýfæddu barni er gefin. Mikil dæmalaus vanþekk- ing felst innan vébanda hinnar vísindalegu læknisfræði, sem kallar sig svo. Vér íslendingar stöndum mörgum betur að vígi með að skilja, hvílík dauðans forheimskun það er að banna ekki innflutning á hvítu 'hveiti og hvítum sykri, svo aug- ljóst sem það er, hvílíkt afhroð þjóðin hefir goldið á heilsu sinni af völdum þessara fæðutegunda. í kjölfar þeirra fór hröð aukning hrörnunarkvilla, svo og berkalveiki, sem lét þá fyrst undan síga, þegar skipulagsbundin herferð var hafin gegn útbreiðslu hennar af völdum smits. En í þeirri baráttu hefir læknum yfirsézt, hér sem annarsstaðar, að berklaveikin er fyrst og fremst manneldissjúkdómur. Rétt manneldi, ásamt heilbrigðum lífsháttum í hvívetna, er eina leiðin til að útrýma ekki aðeins berklaveiki, heldur öllum hnignunar- og hrörnunarkvillum, allt frá tannveiki til krabbameins. Mun ég færa líkur, sem stappa nærri fullri sönnun, fyrir þessum fullyrðingum í næsta hefti HEILSU- VERNDAR.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.