Heilsuvernd - 01.04.1953, Side 12
8
HEILSUVERND
tiltölulega mesta útbreiðslu á hinum stóru búgörðum, en
var svo bönnuð í tíð nazistastjórnarinnar, og er svo enn í
Austur-Þýzkalandi. I Vestur-Þýzkalandi er aðferðin fyllilega
viðurkennd af landbúnaðarvísindamönnum, og stjórnin
styrkir tilraunastarfsemi í þessa átt.
Víða úti um heim eru upplýsingastöðvar fyrir lífrænu
ræktunaraðferðina. f Bandarikjunum t. d. eru varnir gegn
uppblæstri víða framkvæmdar eftir lífrænum aðferðum.
Stofnanir og upplýsingastöðvar hafa samvinnu sín á milli
með mótum, tímaritum o. s. frv. og vinna í sambandi við
hina náttúrufræðilegu deild frjálsa háskólans í Dornach í
Sviss, „Gotheanum“.
Nýtízku jarðrækt byggist á tilraunum, og hafa 'þær stuðl-
að mjög að aukinni uppskeru. Hin lífræna ræktunaraðferð
styðst einnig við tilraunir, en byggist fyrst og fremst á
náinni athugun á náttúrunni.
Gildi tilrauna er nefnilega mjög takmarkað, þar eð ekki
er hægt af fárra ára tilraunum að draga ályktanir, sem gilt
geti fyrir lengri tíma. Enda þótt hormónasprautanir hafi
'hagkvæmar beinar verkanir, t. d. í tvö eða fimm ár, þá
er ekki ósennilegt, að slík notkun hormóna í 10—20 eða
50 ár geti haft svo sterkar skaðlegar verkanir, að betra
hefði verið látið ógert.
Skal nú gerð grein fyrir þeim skoðunum á náttúrunni,
sem liggja til grundvallar fyrir hinni lífrænu ræktunar-
aðferð.
Lífið í náttúrunni einkennist af margbreytni, sem skipar
sér í tegundir, en tegundirnar eru hver annarri háðar. Sem
dæmi má nefna: öndun dýranna og kolsýrunám plantn-
anna, að dýrin lifa á plöntum og dreifa fræjum þeirra, að
plönturnar notfæra sér dauða dýralíkama o. s. frv. Nán-
ari athugun sýnir fjölda dæma um víxlverkun tegundanna.
Margbreytnin hefir ekki einkenni tilviljunar, heldur
skipulagðrar heildar. Samstillingunni milli tegundanna og
hlutföllunum milli útbreiðslu þeirra heldur náttúran alls-
staðar, þar sem maðurinn grípur ekki inn til truflunar.