Heilsuvernd - 01.04.1953, Page 18

Heilsuvernd - 01.04.1953, Page 18
14 HEILSUVERND En illur grunur sótti að mér öðru hvoru. Hrakti ég hann á burt iengi vel, því að læknunum vildi ég, og varð að treysta, annars yrði síðasta von mín rótfúin og dauð. En raunin varð æ gleggri með hverju ári sem leið, að heilsunni hrakaði hægt en markvisst. Alltaf vantaði mig ár hvert fjölda fjörefna og kalk, þó að ég lifði á sömu fæðu og vinnandi fólkið á heimilinu. Þróttleysi og liðaverkir á- gerðust því meir sem líða tók á síðari hluta ársins. Hverri umgangspest var ég næm fyrir. Lögðust þær þungt á mig og færðu mig í harðsnúnari fjötra vanheils- unnar hverju sinni. Auk þess tóku nú æ fleiri kvillar að valda mér erfiðleikum, svo sem truflun á meltingu, brjóstsviði, þarmakveisur, exem, slímhhúðarbólgur í augum og þar- afleiðandi sjóndepra. Svefnleysi ásótti mig æ meir, sem talið var stafa frá lágþrýstingi í blóði, og þar með stöðug- ur höfuðverkur og viðkvæmni á taugum; öll hljóð og hávaði gagntóku mig og lömuðu jafnvægi hugans, og loks er svefninn sigraði andvökuna, tók við hin óttafulla, lam- andi martröð. Einnig voru 'hálsbólga og hálseitlaígerðir með hita ófrávíkjanlegir förunautar mínir frá bernsku- árum. Þurfti ég því að læknisráði að eiga alltaf nægan forða af svæfandi, róandi, deyfandi og græðandi pillum og lyfjum, án þeirra var mér lífið oft svo óbærilegt, að við lá, að ég missti tökin á sjálfri mér og gerði bráðan enda á öllu saman. Þannig var ástand mitt á heilsu, er ég kom í hið ný- stofnaða hressingarheimili Jónasar Kristjánssonar læknis sumarið 1951. Fyrsta daginn, að ítarlegri rannsókn lokinni, reyndist tauganæmi mitt og svefnleysi stafa frá blóðleysi (60%), en ekki neinum óeðlilegum blóðþrýstingi. Þá í fyrsta sinni á ævinni var ég blóðprófuð. Helztu lífsreglur, sem fyrir mig voru lagðar, voru: sólblöð, leirböð og gufúböð, og að borða algjörlega af þeim hráa moldargróðri, sem þar var á borð borinn, einkum allar tegundir grænblöðunga. Fljótlega sætti ég mig vel við kost þennan.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.