Heilsuvernd - 01.04.1953, Page 22
18
HEILSUVERND
langt úr hófi fram. Til dæmis eru ýmsar súpur — gjörðar
eftir fínum útlendum uppskriftum — alóætur saltpækill,
og svo mætti lengi telja.
Vitneskju mína, sem ég gat hér að framan, vil ég nú
leitast við að flokka og velja þá sex menn — karla og
konur á ýmsum aldri — úr hópi þeirra, sem hafa vegna
greinar minnar dregið úr saltneyzlu sinni í von um að
losna við psoriasis og látið mig síðan vita um árangur:
1. Tveir hafa engan bata fengið, a. m. k. ekki ennþá. Ann-
ar getur þess, að kvillinn hafi verið á mjög háu stigi
og hann leitað lækna, innan lands og utan, án nokkurs
gagns.
2. Aðrir tveir telja sig á miklum batavegi. Þ. e. þeir eru
lausir við kvillann annað veifið.
3. Enn aðrir tveir hafa fengið fullan bata og meira til.
Annar gekk með bólgu í blöðruhálskirtli, og hún hvarf
samtímis því að hörundskviHinn læknaðist. Hinn hafði
þrálát útbrot á vörum — áblástra eða eitthvað þess-
'háttar — og losnaði við báða kvillana um það bil sam-
tímis.
Athugum nú þetta lítið eitt.
1.—2. er aðeins það, sem við má búast, og verður ekki
fjölyrt um það.
3. verð ég að telja sérstaklega athyglisvert. Þar endur-
tekst mín eigin reynsla — sem um getur í fyrri grein minni
hér í ritinu — sú, að menn læknast samtímis af meira en
einum kvilla — þar af einum töldum ólæknandi — við þá
einu breytingu á lifnaðarháttum að draga úr sáltneyzlu.
Ekki dettur mér í hug að halda því fram, að afneitun
salts, að miklu leyti, sé nein allra-meina-bót, en hitt þykir
mér sennilegt, að ofneyzla salts sé eitt af mörgu, sem spillir
heilsu menningarþjóðanna. Og ég held, að með tilliti til
vorrar eigin þjóðar, sem lifir afarmikið á saltmeti og þjáist
af fjölda hörundskvilla og magákvilla, sé gild ástæða til
að rannsaka vísindalega áhrif salts og saltmetis á heilsu-
far almennings yfir höfuð. Aðeins læknar geta það, og