Heilsuvernd - 01.04.1953, Page 27
HEILSUVERND
23
vísindi hafa uppgötvað, að þessir kirtlar eru allra dýra- og
plöntuvefja auðugastir af C-fjörefnum.
Dr. Weston og samstarfsmenn hans í leiðangri til Indíán-
anna nyrzt í Kanada björguðu tveimur flugmönnum, sem
neyddust til þess að lenda flugvélum sínum. öðrum þeirra
var bjargað af Indíána frá sorglegum örlögum. Dr. Weston
segir í bók sinni um þennan atburð:
„Annar þessara manna sagði mér eftirfarandi sorglega
sögu: Meðan hann var á leiðinni gangandi yfir háa heiði,
varð hann allt í einu næstum alveg blindur og fékk svo kvelj-
andi verki í augun, að hann var hræddur um að hann
missti vitið. Það var ekki snjóblinda, því að hann hafði
góð snjógleraugu. Það var augnsjúkdómur, sem orsakast
af vöntun A-fjörefna. Hann settist á stein og grét af ör-
væntingu. Hann hélt, að hann fengi aldrei framar að sjá
konu sína og börn. Meðan hann sat þarna og kvaldist í
höfðinu, heyrði hann mannsrödd og leit upp. Hann sá
gamlan Indíána, sem var á bjarndýraveiðum. Indíáninn
sá strax, hvað var að manninum. Og þótt þeir skildu ekki
hvor annars mál, athugaði Indíáninn augu hans og leiddi
hann síðan að læk, sem liðaðist niður fjallshlíðina.
Meðan flugmaðurinn sat og beið, byggði Indíáninn sil-
ungagildru úr steinum þvert yfir lækinn. Svo gekk hann
upp með læknum, snéri við og buslaði niður eftir aftur
og skvetti vatninu frá sér í allar áttir til þess að hræða
urriðann í gildruna. Svo tók hann siiunginn og sýndi mann-
inum síðan, hvað hann ætti að borða af hausnum, einkum
augun og það sem bak við þau er. Þetta hafði þann árang-
ur, að sársaukinn linaðist, er nokkrar stundir voru liðnar,
og tveimur dögum seinna var hann orðinn nærri jafngóð-
ur í augunum. Innilega þakklátur sagði hann, að Indíán-
inn hefði áreiðanlega bjargað lífi sínu með þessu.
Nú hafa nútímavísindi staðfest, að auðugustu A-fjör-
efnin, bæði í fiskum og dýrum, er að finna í vef junum bak
við augun og í nethimnu augans.“ (Lesbók Morgunbl.).
Váldimar Össurarson þýddi.