Heilsuvernd - 01.04.1953, Side 33
HEILSUVERND
29
Félagsfréttir.
Aðalfundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur var haldinn G.
marz 1952. Fráfarandi formaður, Björn L. Jónsson, flutti skýrslu
og lagði fram fjölritaða reikninga, sem sýndu ágóða kr. 2.364,16
og skuldlausa eign kr. 18.209,94. Á starfsárinu höfðu verið haldnir
2 félagsfundir, og á útbreiðslufundi í Tjarnarkaffi 'hafði m. a. verið
sýnd sænska kvikmyndin , Hálsans okánda stigar“, sem N.L.F.Í.
fékk lánaða hingað. Félagar í árslok voru 919, þar af 85 ævi-
féiagar.
Formaður var kosinn Böðvar Pétursson, kennari, og meðstjórn-
endur Hjörtur Hansson, stórkaupmaður, Ingólfur Sveinsson, lög-
regluþjónn, Marteinn M. Skaftfells, kennari, og Steinunn Magnús-
dóttir, frú. í varastjórn voru kosin: Hannes Björnsson, póstmað-
ur, Steindór Björnsson frá Gröf og Svava Fells, frú. Endurskoð-
endur voru kosnir: Björn Svanbergsson, bókari og Þorvaldur
Jónsson, skrifstofumaður, og til vara Lárus Pétursson, fram-
kvæmdastjóri. Fráfarandi formaður hafði beðizt undan endur-
kosningu í stjórn vegna anna.
Að loknum aðalfundarstörfum flutti Gretar Fells fróðlegt og
skennntilegt erindi um þrjá danska yóga, sem hann og kona hans,
frú Svava, kynntust i ferð sinni erlendis siðastliðið ár.
Aðalfundur Náttúrulækningafélags Siglufjarðar var haldinn 26.
febrúar 1952. Fráfarandi formaður, Kristmar Ólafsson, flutti
skýrslu um starf félagsins sl. ár. Félagsfundir voru haldnir tveir,
og á öðrum þeirra var Jónas læknir Kristjánsson mættur og flutti
erindi um uppbyggingu mannslíkamans og viðhald hans. Stjórnar-
fundir voru 8, og vantaði engan stjórnarmann á neinn þeirra (vara-
maður kom í stað eins aðalmanns, sem var fjarverandi mikinn
hluta sumars). Félagatala var 210 í árslok, og höfðu allir greitt
gjöld sín. Á árinu gengu 47 i félagið, en 12 féilu út af félagaskrá
(5 látnir, 3 úrsagnir, 4 fluttir af félagssvæðinu).
Félagið hefir útvegað félagsmönnum nýtt grænmeti og aðra tor-
fengna matvöru og hefir stuðlað mjög að aukinni grænmetis-
neyzlu í bænum. Þá keypti félagið kornmyllu og hefir starfræk
hana síðan. Fer eftirspurn eftir nýju mjöli vaxandi. Alla vinnu
við þessi störf hefir stjórnin lagt fram kauplaust. Ágóði á árinu
var kr. 4.490,90 og skuldlaus eign kr. 15.327,14.
Kristmar Ólafsson, sem verið hefir formaður í 3 ár, baðst undan