Heilsuvernd - 15.12.1958, Page 6

Heilsuvernd - 15.12.1958, Page 6
HEILSUVERND Tannskemmdir meðal frumstæðra þjóða Nýlega hefir verið á það bent í erlendum fréttum, að senn verði hvergi hægt að finna frumstæðar þjóðir. Menningin er að leggja undir sig alla jarðarkringluna, út í yztu og afskekktustu afkima. Og hvarvetna lætur hún greipar sópa um fornar venjur, jafnt illar sem góðar, og stefnir að því að steypa lífsvenjur og siði í sama mót. Þetta er þeim mun auðveldara sem menntunarsnauðir þjóðflokkar líta upp til hvítra manna vegna yfirburða þeirra í tækni. I barnslegri einfeldni gleypir þetta auðtrúa fólk við nýjungunum án þess að óra fyrir hættum og spill- ingu, sem koma jafnan í kjölfarið. Satt er það, að víða hefir tekiz að útrýma hættulegum hitabeltissjúkdómum og villimannlegum venjum, hung- ursneyð og óþrifnaði. En þess eru heldur ekki fá dæmi, að menningin hefir gjörspillt heilum þjóðum eða þjóða- brotum, bæði líkamlega og andlega. Dæmi þess eru þjóð- flokkar, sem búið hafa öldum eða árþúsundum saman á Suðurhafseyjum í friði og eindrægni, í sannkölluðu sælu- ríki, hraustbyggðir og heilbrigðir og ánægðir. Snerting þessara þjóða við hvíta menn leiðir undantekningarlaust af sér heila hersingu áður óþekktra sjúkdóma, sem alls- staðar eru fylgifiskar menningarinnar. Er þar bæði um að ræða sjúkdóma, sem orsakast af sóttkveikjum, svo sem berklar og kynsjúkdómar, og svonefnda hrörnunarsjúk- dóma, sem að dómi læknavísindanna eiga sér meira og minna óljósar orsakir. Til þeirra má telja tannskemmdir, meltingarsjúkdóma, taugasjúkdóma, geðsjúkdóma, æða- sjúkdóma, húðsjúkdóma, gigtsjúkdóma, að ógleymdu krabbameininu. Því miður hefir alltof lítið verið gert að rannsóknum

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.