Heilsuvernd - 15.12.1958, Qupperneq 15
HEILSUVERND
107
Þeir sem vildu kynna sér þessi mál nánar, ættu að
fletta upp í Heilsuvernd árin 1948—1953. I þeim árgöngum
öllum, flestum heftunum, er eitthvað um þetta ritað; m.
a. er sagt allrækilega frá hinum stórmerkilegu tilraunum
enska vísindamannsins Alberts Howard í Indlandi; þar er
því lýst, hvernig safnhaugur er búinn til; ennfremur er
þar að finna ritgerðir eftir tvo Islendinga, sem unnið hafa
á erlendum búgörðum, þar sem safnhaugaáburður er
notaður.
Allt virðist benda í þá átt, að sömu lögmál gildi um
jurtir og dýr: Rétt meðhöndlun jarðvegsins og rétt nær-
ing jurtanna er bezta vörnin gegn jurtasjúkdómum og
bezta tryggingin fyrir heilbrigðum gróðri. Auk þess er þar
hyrningarsteinninn að heilbrigði dýra og manna.
B. L. J.
Um Ilcirbura
Tvíburar fæðast að meðaltali einu sinni af hverjum 80
fæðingum, þríburar einu sinni af 80x80 = 6400 fæðing-
um, fjórburar einu sinni af hverjum 80x80x80 =
512000 fæðingum og fimmburar einu sinni af hverjum
80x80x80x80 = 40.960.000 (40 milljón níu hundruð og
sextíu þúsund) fæðingum. Dæmi eru um sexbura, og í
eitt skipti vita menn, að sjöburar hafi fæðst.
Tvíburar eru oftast tvíeggja, eða 6 sinnum oftar en ein-
eggja. Eineggja tvíburar eru alltaf sama kyns og oft nær
óþekkjanlegir í sundur. Samvaxnir tvíburar eru eineggja.
Bændur vita, að meðferð ánna að vetrinum ræður
miklu um það, hve margar verða tvílembdar. Hið sama
hafa dýratilraunir á ýmsum öðrum dýrum sýnt. Með ýms-
um ráðum, svo sem með fóðri eða með röntgen- eða
radiumgeislum um meðgöngutímann má einnig framleiða
vansköpuð afkvæmi, þar á meðal samvaxin fóstur.