Heilsuvernd - 15.12.1958, Page 23
HEILSUVERND
115
farin sumur. En í hinum hlutanum sást varla maðkur í
nokkurri rófu. Takmörkin á milli sýkta hlutans og hins
maðklausa voru nákvæmlega hin sömu og áburðarmörkin,
og alveg ótrúlega skörp, engu líkara en einhver ósýnileg
girðing hefði varnað maðkinum að komast yfir þessa línu.
Hér er aðvitað ekki um vísindatilraun að ræða. En
reynsla trúverðugra manna, úr hvaða stétt sem er, hefir
engu minna gildi en tilraunir hálærðra vísindamanna, sé
hún rétt túlkuð. Það er slík reynsla, sem hefir verið leið-
arsteinn mannkynsins frá örófi alda, vísað frumstæðum
þjóðum allra landa inn á réttar leiðir til viðhalds og vernd-
unar kynstofninum, kennt mönnum, svo dæmi sé nefnt,
að borða skarfakál og fleiri jurtir, eða nýrnahettur og
fleiri líkamshluta veiðidýra, til að lækna skyrbjúg, kennt
einhverri formóður okkar Islendinga að búa til skyr, o.
s. frv. Hvað það er í hrossataðinu, sem fælir maðkinn eða
fluguna á brott, skal ósagt látið. Ekki er ólíklegt, að hægt
væri að ná sama árangri með safnhaug búnum til úr hvaða
áburði sem vera skal, eins og formælendur hinna lífrænu
ræktunaraðferða kenna okkur.
B. L. J.
<o>
GJÖF I HEILSUHÆLISSJÓÐ.
Þingeyri, 27/11 1958.
Náttúrulækningafélag Islands, Reykjavík.
Ég undirritaður sendi yður að gjöf hjálagt skuldabréf,
1.000.00 kr. Ég er mjög ánægður með að geta stutt svo
gott málefni eins og þetta.
Virðingarfyllst.
Sveinn Brynjólfsson,
Þingeyri, DýrafirÖi.
Kærar þakkir. Stjórn N.L.F.l.