Heilsuvernd - 15.12.1958, Side 25

Heilsuvernd - 15.12.1958, Side 25
HEILSUVERND 117 Stundum er talið, að bakteríur eigi sök á myndun gall- steina. En séu slímhúðirnar heilbrigðar, er ekkert að ótt- ast, og slímhúðarbólgan er því í raun réttri aðalorsökin. Menn geta gengið með gallsteina árum eða áratugum saman án þess að vita af því eða finna til nokkurra óþæg- inda. En leiti steinarnir út í gallganginn, fylgja því mjög sárar þrautir. Venjulega nota læknar morfín eða önnur deyfilyf til að lina kvalirnar. En slík lyf lama alla líkams- starfsemina. Þrautir sjúklingsins má lina með því að leggja hann í eins heitt bað og hann þolir, hafa kalda bakstra á enni hans og sjá fyrir góðri loftræstingu í baðherberg- inu. Vatninu er alltaf haldið hæfilega heitu og sjúklingur- inn látinn liggja í því eins lengi og þörf krefur, allt að hálf- um klukkutíma eða lengur. Varast skal samt að nota þessa aðferð við þá, sem þjást af sjúkdómum í hjarta, æðum, nýrum eða lungum, og einnig skal höfð sérstök varúð við aldraða og veiklaða sjúklinga. Sé ekki hægt að nota heitt bað, skal leggja heita bakstra á sjúklinginn, ofarlega á kviðarholið. Áhrif heita baðsins eru þau m. a., að sjúklingurinn verð- ur slappur og slakar á öllum vöðvum. Gallsteinninn kemst þá auðveldlegar leiðar sinnar og veldur sjúklingnum ekki eins miklum þrautum. Orsakir. Talið er, að stundum eigi bakteríur sök á mynd- un gallsteina. En séu slimhúðirnar heilbrigðar, er ekkert að óttast. Slímhúðarbólgur í lifur og gallblöðru eru því aðalorsök gallsteina og gulu. En af hverju stafa þær? Þær eiga sér svipaðar orsakir og bólgur í öðrum slímhúðum líkamans, rangt fæði og óholla lifnaðarhætti, og sérstak- lega ber að nefna ofneyzlu feitmetis og krydds og áfengis- neyzlu. Meðferð. Af langri reynslu get ég fullyrt, að gallsteina er langoftast hægt að lækna án uppskurðar, að minnsta kosti ef sjúklingurinn er ekki eldri en 55 til 60 ára. Og eldra fólk ætti einnig að reyna aðrar aðferðir, áður en gripið er til skurðaðgerðar. Hér verða ekki látnar í té

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.