Heilsuvernd - 15.12.1958, Side 26
118
HEILSUVERND
nema fáeinar almennar bendingar, því að nákvæm með-
ferð verður að miðast við ástand hvers sjúklings fyrir sig.
Gott er að byrja á því að taka inn milt hreinsunarlyf
til að hreinsa vel meltingarfærin, og drekka nóg af volgu
vatni á eftir. Þann dag og næstu daga á ekkert að borða
nema nýjan aldinsafa og volgt vatn. Og daglega þarf að
setja sjúklingnum stólpípu. Þetta á við bæði um gallsteina
og venjulega gulu, sem læknast á fáeinum dögum. Sjúkl-
ingurinn ætti síðan að lifa um hríð eingöngu á nýjum ald-
inum og nýju grænmeti, aðallega ósoðnu. Og síðan verður
hann alltaf að gæta hófs í neyzlu feitmetis, svo sem rjóma,
feitra osta o. s. frv., svo og að forðast eftir föngum ein-
hæfa eggjahvítufæðu og kolvetnafæðu (sykur og sætindi,
hvítt hveiti, kökur og búðinga). ennfremur tóbak og áfenga
drykki.
(Lausl. þýtt úr Health Culture).
<o>
HINIR VITRUSTU EIGA AÐ STJÓRNA.
Við viljum ekki stofna ríki með sjúkum þegnum og ör-
bjarga. Fyrirmyndarríki hlýtur að annast líkamsrækt
þegna sinna framar öllu öðru. Þó er ræktin við líkamann
ekki einhlít, því að það gerir menn fávísa að sinna engu
öðru.
Það er niðurlægjandi að leita hjálpar hjá læknum, er
menn hafa svallað sér til óbóta og gert líkamann að sorp-
ræsi óhollra efna.
Það nægir ekki, að börnin fái viturlegt uppeldi. For-
eldrar þurfa umfram allt að vera heilir heilsu.
Aldrei mun nokkurt ríki þrífast vel né heldur mann-
kynið, nema hinir vitrustu verði gerðir að þjóðhöfðingj-
um og stjórnendum, nema þekkingin og valdið fari saman.
(Platon).