Heilsuvernd - 15.12.1958, Síða 28
120
HEILSUVERND
Sænskir læknar
gegn sælgætisneyzlu
Fyrir nokkru gengust sænskir tannlæknar fyrir stofnun
félags, í því skyni að vinna gegn tannskemmdum, m. a.
með áróðri gegn neyzlu sykurs og sælgætis. Þekktir sænsk-
ir læknar hafa gengið í lið með þeim, m. a. Gunnar Fischer,
prófessor í heilsufræði við „karolinska Institutet“ í Stokk-
hólmi og deildarstjóri við „Statens institut för folkhálsan",
höfundur fjölda ritgerða, aðallega um bakteríufræði og
heilsufræði. Hann kveður sannanir fyrir áhrifum sælgætis
á tennurnar svo víðtækar og óyggjandi, að ekki sé annað
verjandi en að gerðar séu nú þegar öflugar ráðstafanir til
að draga úr hinni miklu sykur- og sælgætisneyzlu barna
og unglinga.
Eins og gefur að skilja, eru sænskir sælgætisframleið-
endur lítt hrifnir af þessum kenningum. Og þeir hafa feng-
ið kunna lækna í lið með sér til að mæla sykri og sælgæti
bót og reyna að telja fólki trú um, að engin hætta sé á
ferðum og sykur og sælgæti sé haft fyrir rangri sök. Þeir
vilja bíða eftir árangri innlendra rannsókna, sem gætu
tekið mörg ár, enda þótt úi og grúi af erlendum tilraunum
og rannsóknum, sem hafa sannfært alla hlutlausa aðila
um, að sykur og sælgæti séu stærstu tannspillarnir.
Á Islandi hefir oft verið bent á þá hættu, sem stafar
af sælgætisbúðum í næsta nágrenni barna- og unglinga-
skóla, en þangað þyrpast börnin í frímínútum og kaupa
sælgæti og kóladrykki, sem stuðla einnig að tannskemmd-
um. Svíar hafa ekki farið varhluta af þessu vandamáli. Um
það segir prófessor Fischer á þessa leið:
„Ég vil hvetja hlutaðeigandi yfirvöld til þess að ganga
að því með oddi og eggju, að sælgætissölum sé útrýmt úr
næsta nágrenni skólanna. Hver slík sælgætissala kostar