Heilsuvernd - 15.12.1958, Blaðsíða 35

Heilsuvernd - 15.12.1958, Blaðsíða 35
HEILSUVERND 127 Þann 17. júní, eða eftir 11 vikur ,var hægt að fara með Hanny út í garð í legustól. 1 lok mánaðarins fór ég með hana i bifreið minni til sjúkrahússins til þess að taka rönt- genmyndir af hinum sjúku liðamótum. Áður en 8 vikur voru liðnar, höfðu bólgurnar á hendinni opnast, svo að gröfturinn vall út. Við það linuðust þrautirnar í hendinni, og það var hægt að gera sér vonir um, að hinir sýktu hlut- ar beinsins mundu losna frá og ganga út. Og röntgenmynd- irnar sýndu, að beinflísar voru einmitt byrjaðar að losna frá. Mestar áhyggjur hafði ég út af berklahreiðri með bólgu á hægra fæti. Ég setti gipsumbúðir um fótinn, tók þær af eftir mánuð, og hann læknaðist að fullu, án þess að bólgan opnaðist. Héndurnar reyndu meira á þolinmæðina. Sjúklingurinn hélt áfram sama mataræðinu og notaði sól og sólböð. Henni fór stöðugt fram. Ég sá hana einu sinni í mánuði. For- eldrar hennar spurðu mig, hvort þau ættu að dvelja með hana í háfjallalofti um tíma, en ég svaraði þeim því, að mataræðið hefði meiri þýðingu en háfjallaloftið. Og næsta sumar, í júlímánuði, gat Hanny svo farið í sumarfrí með bræðrum sínum. Ári síðar tók hún þátt í margra klukku- tima fjallgöngu í Alpafjöllunum. Árið 1935 er Hanny mjög heilsugóð, iðkar fjallgöngur og er líkamlega sterkari en jafnöldrur hennar, sem lifa á kjöti. Franklin Bircher, lceknir. (Þýtt úr þýskuJ.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.