Heilsuvernd - 01.12.1959, Page 6
98
HEILSUVERND-
Esra Péturssonj, læknir:
Skaösemi
tóbaksreykmga
(Grein þessi er úr mánaðar-
ritinu Einingu, nóv. 1958, og
birtist hwr með góðfúslegu
leyfi ritstjórans fyrir hönd
ritsins og höfundar, sem er
fjarstaddur).
Niðurlag.
Mikil tóbaksneyzla getur leitt til langvarandi (kroniskr-
ar) tóbakseitrunar. Mjög er það misjafnt, hve miklar reyk-
ingar menn þola án þess að fá tóbakseitrun. Sumir fá
hana, þótt þeir reyki aðeins fimm sígarettur daglega. Hún
er algeng hjá þeim sígarettureykingamönnum, sem reykja
,,ofan í sig“, eins og það er kallað. Það er: sjúga reykinn
ofan í lungun. Á hér við að geta þess, að samanlagt yfirborð
hinna minnstu lungnablaða er 60 fermetrar. Mun minni
hætta af tóbakseitrun er þeim mönnum búin, sem reykja
pípu, enda reykja þeir færri ofan í sig.
Hin lcroniska tóbakseitrun lýsir sér þannig, að maðurinn
verður eirðarlaus og í slæmu jafnvægi, og ágerizt þetta við
lélegan nætursvefn. Oft fylgir þessu höfuðverkur og svimi,
matarlystin minnkar og getur þetta leitt til mikillar megr-
unar, þó þarf ekki svo að vera. Meltingartregða er algeng,
en stundum fylgir slæmur niðurgangur. Mjög einkennandl
eru óþægilegar tilfinningar frá hjarta og æðum. Oft er
hjartslátturinn þungur eða hraður og óregla á hjartaslög-
um. Hjartað sleppir úr slögum, og koma svo aukaslög all-
þung á eftir. Það er líkast því sem hjartað hafi dottið eða