Heilsuvernd - 01.12.1959, Side 13

Heilsuvernd - 01.12.1959, Side 13
HEILSUVERNI) 105 aoeins tíundi hluti fallið til jarðar með regni eða snjó. Og smámsaman hljóta hinir níu tíundu hlutarnir einnig að leita til yfirborðs jarðar. Við erum látin greiða kostnaðinn við þessar óheillavæn- legu tilraunir, og æ meiri peningar eru drengir úr vasa okkar til þess að vinna að eyðileggingu okkar sjálfra. — Hvernig getum við liðið slíkt framferði? Reiknað hefir verið út, að til varnarráðstafana almenn- ingi til handa sé varið aðeins % af hundraði þess fjár, sem fer í leit og framleiðslu árásarvopna, er valda dauða og öðrum hörmungum. Nokkur afsökun er það, að enn þekkj- ast engin ráð til varnar gegn verkunum kjarnorkunnar, svo að segja má, að ekki sé þar um neina vanrækslu að ræða. Menn spyrja: Hvernig þora ráðamenn þjóðanna að taka á sig þá ábyrgð að reisa kjarnorkuver í þéttbýli? Trúa þeir sjálfir fullyrðingum sínum um loftvarnir? Er þeim ekki Ijóst, hvað í húfi er fyrir heilsu manna, ef geislamagn í lofti, vatni og matvælum fær að aukast jafnt og þétt? Ber þeim ekki skylda til að láta rannsaka matvæli til að komast að raun um, hvort þau innihalda ekki nú þegar það mikið af geislavirkum efnum, að helsu okkar sé óbætan- legt tjón búið? f útvarpserindum sínum varar Albert Schweitzer fólk við því að láta blekkjast af fögrum orðum. Hann kveður lýsingar á svonefndum ,,hreinum“ kjarnasprengjum, sem láti ekki eftir sig nein skaðleg geislavirk efni, hina mestu fjarstæðu. f þessum sprengjum er, eins og í öðrum kjarna- sprengjum, efnið úran 235, og þegar það sundrast, myndast alltaf geislavirk úrgangsefni. Eini munurinn er sá, að þessar „hreinu“ sprengjur hafa ekkert úran 238 utan um sig eins og hinar og eru því nokkru veikari. Schweitzer telur þær komnar fram sem eins konar glingur til að lægja kvíða- öldur fólks, en ekki til hernaðar. Og hann spyr, hver hafi veitt stjórnvöldum þjóðanna leyfi til að gera á friðartímum tilraunir með efni, sem baki óbætanlegt heilsutjón ekki aðeins núlifandi mönnum heldur og komandi kynslóðum.

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.