Heilsuvernd - 01.12.1959, Side 17

Heilsuvernd - 01.12.1959, Side 17
HEILSUVERND 109 að lifa lífi sínu og búa í haginn fyrir komandi kynslóðir, og þrá hans og leit eftir fegurð og siðgæði. Því miður eru flest okkar sem lömuð af öllum þessum nýjungum og lítt skiljanlegu uppgötvunum, og við áttum okkur ekki á yfirvofandi hættum. Værum við samtaka um að rísa upp til mótmæla gegn þessu athæfi, sem getur leitt til tortímingar öllu lífi á jörðunni, ætti að mega skapa svo sterka andmælaöldu um allan heim, að frekari aðgerðir hlytu að verða stöðvaðar. Almenningur verður að standa vörð um rétt sinn og taka örlög sín í eigin hendur. Ella er tortímingin vís, og við höfum sjálf átt óbeinan þátt í að leiða hana yfir okkur sjálf og börn okkar. Og þótt við skeytum ekki um okkur sjálf, höfum við skyldur gagn- vart afkomendum okkar, þær að láta kyndil lífsins ganga óskertan til næstu kynslóðar. Enginn veit, hve langur frestur okkur er gefinn, eða hvenær sú stund kemur, að engu verði umþokað. 1 „Salz- burger Nachrichten" 19. okt. 1957 var sagt frá merkilegum mælingum á botni úthafanna. Þessar mælingar gætu bent til þess, að jörðin væri að klofna í tvennt. Það er jtrófessor Hugh Blackpole og aðrir þekktir vísindamenn, sem hafa komizt að raun um, að í botni Atlantshafs og Kyrrahafs hefir myndazt mikil sprunga, um 35 km á breidd og geysi- djúp. Hún liggur eftir Atlantshafi endilöngu frá norðri til suðurs, suður fyrir suðurodda Afríku, hefir einnig fundizt við Nýja Sjáland og gengur alla leið norður undir Alaska. 1 mestu hafdjúpunum er sprungan breiðust. Hvernig hefir hún myndazt? Þeirri spurningu ætti ekki að vera erfitt að svara, þegar það er hugleitt, að stöðugt er verið að varpa kraftmiklum kjarnasprengjum í úthöfin. o—O—o 1 Þýzkalandi, Englandi, Japan og fleiri löndum hafa verið rnynduð samtök karla og kvenna, sem beita sér fyrir mótmælum gegn tilraunum með þessi hættulegu öfl. Hafið þið heyrt getið um amerísku kvekarana, sem hugðust fórna

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.