Heilsuvernd - 01.12.1959, Blaðsíða 31

Heilsuvernd - 01.12.1959, Blaðsíða 31
HEILSUVERND 123 þeim hættir til að taka sér dómsvald yfir þeim, sem ekki eru þeim sammála. Þetta eru lestirinr. En sömu menn eiga oft dugnað í fórum sínum, sem er ómetanlegur, sé honum beitt á jákvæðán hátt. Félagið hefur átt því láni að fagna að hafa í fararbroddi Jónas Kristjánsson, lækni. Hann er víkingur í lund, ein- arður, greindur, djarfur og réttsýnn, fæddur baráttumað- ur. Og svo er hjartað á réttum stað, mannúð og mildi gagnvart þeim, sem erfitt eiga. Það ríður baggamuninn. Hefði Jónas ekki verið þessum eðliskostum búinn, væri sennilega ekkert starfhæft náttúrulækningafélag á íslandi og því síður heilsuhæli á vegum þess. Enginn félagsskap- ur, sem beitir þvingunaraðferðum, reynist langlífur, allra síz t á íslandi. Náttúrulækningafélagið er félagsskapur frjálsra manna, sem leggja vilja góðu máli lið, — heilsu- vernd. Menn taka ekki á sig neinar skuldbindingar, þó að þeir séu félagar, engin heit eru unnin og einskis krafizt. Hver og einn getur farið með sinn líkama svo sem honum þóknast. Væri kjötætum og kaffiunnendum útskúfað yrði bolmagn félagsins lítið á eftir. Þetta er nú sannleikurinn, hvort heldur hann veldur hryggð eða gleði þeirra, sem hlut eiga að máli. Annað er það, að stefnan getur ekki hagað starfi sínu eftir dutlungum einstakra félagsmanna, því að með því móti yrði fremur um stefnuleysi að ræða. Nei, stefnan verður að hafa sannleikann að leiðarljósi, sannleikann um það, hvað manninum er hollast, að svo miklu leyti sem hann er kunnur, en þegar þann grunn þrýtur, verður að notast við það, sem næst virðist komast. Mest veltur á því, að starfað sé í réttum anda af þrótti, en með tillitssemi. Jákvætt starf á grundvelli frelsis leiðir til sigurs að lokum. Ofstæki getur blásið upp fyigi um stundarsakir en veldur síðan pexi og deilum, sem drepa alla góða viðleitni, því ber að varast það. Þetta á við um allan félagsskap. Náttúrulækningafélag íslands er ekki stórt félag, en það á mikilvægt verkefni að vinna, og gott er að vita af góðum félögum við störf á þeim reinum

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.