Heilsuvernd - 01.12.1961, Blaðsíða 14

Heilsuvernd - 01.12.1961, Blaðsíða 14
Annn Matthínsdóttir: llcilsuíarsbroyting á Iciöum náttúrulækn- inga Margir hafa sagt við mig, að ég ætti að skrifa um þá breytingu, sem orðið hefir á heilsu minni siðustu 10—11 árin, og hver orsök þess muni vera. Þeir, sem hafa beðið mig um þetla, eru aðallega fólk, er þekkti mig sem veiklað, kirtlaveikt barn, sílasinn, gelgju- legan ungling, fölleita unga stúlku, sem aldrei vissi, hvort hún kæmist i skóla eða til vinnu frá degi til dags. Ekkert ætti að vera mér kærara en að verða við þess- um tilmælum, ef verða mætti einhverjum til uppörvunar og hvöt til þess að leita á þeim leiðum, sem svo mjög hafa hjálpað mér, og jafnvel losað mig undan fargi sjúkdóma, er voru i þann veginn að gjöra mig óvinnufæra. Það sem hefir dregið úr mér kjarkinn er bað, að frá- sögn sem þessi hlýtur alltaf að verða mjög persónuleg, einskonar sýning á sjálfum sér. Nú þegar ritstjóri Heilsu- verndar fer þess á leit við mig, að ég segi frá reynslu minni í þessum efnum, ætla ég að láta skeika að sköpuðu með mínar presónulegu tilfinningar. Sem barn var ég mjög kirtlaveik, sem kallað var, fékk útbrot um allt höfuðið á velrum, en útbrot þessi hurfu að mestu eða öllu leyti á vorin, þegar blessuð sólin fór að hækka á lofti og nýmeti, svo sem fiskur. þorskalifur og fleira varð fáanlegt. Ennþá er mér í minni atvik, sem kom fyrir eitt vor, þá mun ég hafa verið mjög ung, líklega 3—4 ára gömul. Bornir höfðu verið á borð nýir þorskhausar og lifur, handa

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.