Heilsuvernd - 01.12.1961, Page 32
120
UEILSUVHRNl)
verið góð. Hefir tryggingaráð sýnt skilning á þörfum
fyrir hækkun daggjalda til samræmis við vaxandi dýrtíð
og lagt til, að sjúkrasamlög landsins hækkuðu þálttöku
sina í samræmi við það. Nokkru tjóni hefir hælið þó orðið
fyrir vegna sumartímans, sem tryggingaráð ákvað að
skyldi vera undanskilinn sjúkrasamlagsstyrk til sjúklinga
hælisins, bæði 1959 og 1960. Þetta leiðréttist að nokkru
leyti á síðastliðnu vori, og á þessu sumri var greilt sem
svarar kr. 50.00 á dag fyrir sjúkrasamlagssjúklinga. Varð
það þess valdandi, að aðsókn varð mun meiri en verið
hafði tvö sumurin á undan.
1 byrjun desember 1959 var skrifstofa félagsins í Reykja-
vík flutt frá Gunnarsbraut 28 í Austurstræti 12, þar sem
hún er nú. Ástæðan var sú, að frú Ásta Jónasdóttir gat
ekki sinnt skrifstofustörfum lengur eða iagt til húsnæði
fyrir skrifstofuna.
Snemma á árinu 1960 var handrit að æfisögu Jónasar
Kristjánssonar læknis tilbúið frá hendi höfundarins, Bene-
dikts Gíslasonar frá Hofteigi. Við yfirlestur handritsins
kom í ljós, að hvorki aðstandendur Jónasar né stjórn fé-
lagsins gátu sætt sig við að gefa það út óbreytt, og er nú
í athugun að fá gerðar á því lagfæringar og áætiað að
gefa bókina út seinni hluta árs 1962.
Tímarit félagsins, Heilsuvernd, hefir komið út með
svipuðum hætti og áður. Frá siðustu áramótum hefir Björn
L. Jónsson læknir haft ábyrgð og ritstjórn með höndum.
Á árinu 1960 var efnt til happdrættis til ágóða fyrir
heilsuhælið. Miðasala gekk mjög tregt, en sökum þeirrar
heppni, að aðalvinningurinn kom á óseldan miða og seldist.
síðar fyrir kr. 120.000.00, var hagnaður af happdrættinu
um kr. 150.000.00.
Á síðasla landsþingi var stjórninni falið að athuga mögu-
leika á leyfi fyrir föstu happdrætti. Sú athugun hefir leitt
í ljós, að engar líkur eru fyrir því, að slikt leyfi fáist,
þar sem mörg önnur líknarfélög hafa leitað eftir slíku, og