Heilsuvernd - 01.12.1961, Blaðsíða 39
Nikótín og kolsýrlingur í blóði og mjólk
reykjandi mæðra
Rannsóknum á nikótíni i mjólk reykjandi mæðra ber illa
saman. Sumir vísindamenn finna lítið sem ekkerl nikótín
í mjólkinni. En nýlega hafa tveir sænskir læknar, Ragncir
Berfenstam og Bo Bílle, fundið hálft mg nikótíns í hverjum
lítra mjólkur hjá konum, sem reykja mikið. Hjá ungbarni
getur þelta magn valdið eitrunareinkennum.
Við reykingar myndast kolsýrlingur, sem er mjög eitruð
lofttegund, svo sem kunnugt er. Hann bindur blóðrauðann
og hindrar þannig súrefnistöku blóðsins og veldur köfnun,
ef mikil brögð eru að. Einar tvær sígarettur framleiða
nægilegt magn kolsýrlings til að binda lO'ft blóðrauðans,
en við 16—20r/f koma fram eitrunareinkenni. Kolsýrling-
urinn fer óhindraður gegnum fylgju og inn í blóð fósturs-
ins og veldur þar samskonar skemmdum og hjá móðurinni.
(Heimild: Nordi.sk Medicin, nr. 35 1959)
Nátlúrulœkningafélag Reykjavíkur
hélt aðalfund sinn 7. marz 1961. Formaður, Klemens
Þórleifsson, flulti skýrslu um störf félagsins á síðasta starfs-
ári, og gjaldkeri, Njáll Þórarinsson, las reikninga félags-
ins, sem voru síðan samþykktir. Félagar eru nú 786, þar
af 86 ævifélagar. Sljórnin lagði fram nokkrar tillögur um
lagabreytingar, en samþykkt var að fresta þeim lil næstá
fundar, sem verður framhaldsaðalfundur, og fela stjórn-
inni nánari endurskoðun laganna fyrir þann fund. Stjórn-
in var öll endurkosin, og skipa hana: Klemens Þórleifsson
kennari, formaður, ungfrú Guðrún Árnadóttir, kaupkona,
Njáll Þórarinsson, heildsali, frú Steinunn Magnúsdóttir og
frú Svava Fells.
Framhaldsfundui' var haldinn 26. april og samþykktar
nokkrar lagabreytingai'. Þá flutti Björn L. Jónsson, læknir,
erindi, „Listin að eta“, og Einar Sveinbjörnsson, fiðluleik-
ari, lék nokkur lög við undirleik Skúla Halldórssonar, tón-
skálds.