Heilsuvernd - 01.12.1961, Page 30

Heilsuvernd - 01.12.1961, Page 30
8. LANDSÞIiVG N.L.F.Í. var háð í húsi Guðspekifélagsins í Reykjavík dagana 20. og 21. október 1961. Þingið sóttu 23 fulltrúar frá 5 félögum. Frú Arnheiður Jónsdóttir, varaforseti bandalagsins, sem gegnt hefir forsetastörfum, síðan forsetinn, Jónas Krist- jánsson, féll frá, setti þingið föstudaginn 20. okt. kl. 10,30 og minntist látinna félaga. Flutti hún nokkur minningar- orð um hinn látna forseta, og birtast þau á öðrum stað hér í heftinu. Þingforsetar voru kosnir Klemens Þórleifsson og Jón Kristjánsson, þingritarar Steindór Björnsson og Böðvar Pétursson. Frú Arnheiður Jónsdóttir flutti skýrslu um störf NLFl síðustu 2 árin, og fer hún hér á eftir: ,,Við fráfall forsetans, Jónasar Kristjánssonar læknis, tók sæti í stjórninni dóttir hans, frú Guðbjörg Birkis. Þegar Úlfur Ragnarsson flutti burtu, tók sæti hans í stjórninni Klemens Þórlelfsson kennari. Frá síðasta Landsþingi 1959 hefir stjórnin haldið 19 fundi. Verkaskipting stjórnarinnar hefir verið þessi: Ritari Öskar Jónsson, vararitari Úlfur Ragnarsson og gjaldkeri Pétur Gunnarsson. Eins og að undanförnu hafa störf stjórnarinnar fyrst og fremst verið í sambandi við heilsuhæli félagsins í Hvera- gerði. Þegar síðasta þing var háð, var framkvæmdum þar komið, að nýja íbúðarálman hafði verið tekin í notkun og þó ekki fullgerð. Veturinn eftir var hún standsett til fulln- ustu og kostaði þá með innbúi um hálfa aðra milljón króna. Sama vetur (1959—60) var byggt starfsmannahús á lóð hælisins. Er það einnar hæðar hús úr samskonar efni og hælisbyggingin, 210 fermetrar og kostaði um hálfa milljón króna. Eru í því þrettán íbúðarherbergi, auk snyrtiher- bergja og baðherbergis, eldhúss og geymslu. Það skal tekið fram, að innréttingu vantar enn sem komið er í eldhúsið, að

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.