Heilsuvernd - 01.10.1963, Síða 5
Seltjarnarnesi. Var ekki talin þörf á að láta könnunina ná til yngri
barna en 10 ára, þar sem ekki er gerandi ráð fyrir, að þau séu byrj-
uð að reykja svo neinu nemi.
Könnun þessari var hagað líkt og árið 1959. Prentuð voru spurn-
ingaspjöld í tveimur litum, annar liturinn fyrir pilta og hinn fyrir
V stúlkur, og litu spjöldin þannig út:
BORGARLÆKNIRINN
Reykj avik
Könnun á reykingum harna í skólum, í apríl 1962.
Aldur: .........
1) Reykirðu sígarettur?
Nei, aldrei, já. (Undirstrika rétta svarið).
Ef þú reykir:
^ Hve margar á mánuði? ...... Hve margar á dag? ______
2) Hve mörg af bekkjarsystkinum þínum er þér kunnugt um
að reyki?
Stúlkur ... Piltar .....
Könnunin fór fram fimmtudaginn 12. apríl 1962 í 10 harnaskól-
um, og eftir því sem við varð komið í síðustu kennslustund í árdeg-
ishekkjunum og fyrstu kennslustund síðdegishekjanna. Börnin vissu
ekki, hvað til stóð, fyrr en kennarinn úthlutaði spurningaspjöldun-
um, og hrýnt var fyrir þeim að láta ekkert kvisast til skólasystkina
^ sinna, sem koma áttu í skólann eftir hádegið og verða kynnu á vegi
þeirra.
Kennarinn útskýrði rækilega tilgang könnunar þessarar og lagði
áherzlu á, að svo væri um hnútana húið, að enginn gæti fengið
minnstu vitneskju um svar hvers einstaks barns. Spjöldin væru nafn-
laus, þau yrðu öll sett í eitt umslag fyrir hvern hekk að börnunum
ásjáandi, uinslaginu lokað og það merkt nafni skóla og bekkjar og
síðan afhent borgarlækni til úrvinnslu. Börnin gætu því allsendis
óhrædd svarað öllum spurningum rétt og samvizkusamlega, en það
væri nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að rannsóknin kæmi að tilætl-
uðum notum.
II EILSUVERND
125